nóvember 05, 2008
Í dag eru akkurat 39 dagar þar til ég kem heim!:D
Hér er allt að verða brjálað útaf kosningunum, mörg fyrirtæki eru að bjóða fólki hitt og þetta ef þau kjósa. Td. gaf Starbuck öllum þeim sem kusu frítt kaffi. Í skólanum í dag voru flestir með barmerki eða límmiða á sér sem stóð á „I Voted“. Aldrei í sögunni hefur fólk hérna verið svona mikið inní kostningum, sem er bara frábært. Við heima hefðum átt að vera meira vakandi þegar okkar kostningar áttu sér stað seinast... en jæja ætla ekki einusinni að byrja hehe.
Ég og Alexa, bekkjasystir mín vorum saman í verkefni sem heitir „Make a Difference“, og við áttum að fara út og finna eitthvað sem mætti bæta í daglegu lífi og hanna eitthvað viðeigandi. Okkar verkefni snerist um það þegar maður situr á bókasafni FSU þá eru tölvurnar svo klesst uppað hvor annari og ekkert privacy, svo við hönnuðum skilrúm sem fólk getur dregið út og valið hversu mikið þau vilja loka sig af. Við smíðuðum tvö skilrúm, settum þau upp á bókasafninu og tókum viðtal við fólk eftirá.
Við sátum þarna flissandi og njósnandi um fólkið, sem var frekar vandræðanlegt svona inná stóru bókasafni. En það hafðist og við fengum meira að segaj viðurkenningu fyrir verkefnið:)
Kennarinn var hrósaði okkur bak og fyrir og sagði okkur að fara með verkefnið á bókasafnið því það gæti vel verið að þetta yrði partur af bókasafninu, og að sjálfsögðu yrðum við skráðir sem hönnuðirnir:)
Svo var ég að fá A, eða 9,8 fyrir verkefnið mitt sem ég sýndi myndir af í síðasta bloggi. Þegar ég fékk einkunnarblaðið til baka þá fylgdi með viðurkenning fyrir „outstanding performance“... í því stóð svo að ég fengi ekki verkefnið mitt til baka fyrren í lok nóv því það fer á sýningu hjá CIDA, eða the the Council for Interior Design Accredidation (arkítektafélag sem metur skólana).
Einnig stóð: „Your project shows your attention to detail and a level of high quality that will serve you well in your career“.
Mín voða glöð! :) híhí
Annars vorum við að koma frá Orlando þar sem við Halloween-uðumst með Rakel Örnu og Daniel. Um leið og við komum til þeirra þá var það bara beint í búninginn, Rakel og Marilyn vinkona hennar úr skólanum voru að setja gervi á tvo vini Daniels.
Við skelltum okkur svo Down Town Orlando á geðveikan úti- skemmtistað þar sem allt var troðið af furðuverum. Göturnar voru troðfullar af fólki í búningum og svakaleg stemming!!
Daginn eftir fórum við á hlaðborð á einhverjum stað og í bíó Down Town Disney og sáum Tim Burton myndina. Sunnudagurinn fór í SMÁ búðarráp, en við kíktum í Mall of Millenia. Ég keypti mér svo Súkkulaði-ostaköku á Cheesecake Factory sem er sko to-die-fore!!
Það verða engin svaka jólainnkaup í ár útaf dollaranum sem er orðinn himinhár! Hann hefur meira en TVÖFALDAST síðan við fluttum út!! Skólagjöldin mín voru í 500þús á ÖNN en verða nú 1.3 miljón!! Mig langar að gráta...
Ég er hérna á netinu að leita mér af styrkjum. Það er ekki mikið í boði fyrir útlendinga, en það sem maður er nú á Dean‘s List yfir yfirburða einkannir þá ætti maður nú að finna eitthvað. Mont-mont:)
Ætla að halda leitinni áfram, knús heim! :)
♥~*Ãg*~♥
Margrét heiti ég og er fædd 2.aprÃl 1983. Stúdent frá FG. Ãg bý à Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mÃnum og stunda hér nám à innanhússarkÃtekt:)
♥~*Gestabókin*~♥
♥~*Myndir*~♥
Skoða myndir!♥~*Hafðu samband*~♥
♥~*Vinir og vandamenn*~♥