myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

október 07, 2008



Hæjj

Allt gott að frétta af okkur.
Hjördís mamma Fannars kom og var hjá okkur í 8 daga. Gerði heimatilbúin mömmumat og allt voða heimilislegt sem var æði.


Við vorum einnig boðin í mat til Hilmars og Kristínar, en Hilmar er fyrrverandi Consúll Íslands í Flórida. Þau eru um áttrætt en eldhress! Það var opinn bar hjá þeim eins og vanalega, en þau eru með þennan svaka fína bar inní stofunni hjá sér, barstólar, dæla, allskonar vín og bara name it :)


Ég gat samt ekkert verið voða mikið með því ég átti að skila inn verkefnum. Hér er Childcare Center sem ég hannaði og conceptið mitt var "the sun", svo allt hannað útfrá því.


Svo gerði ég eitthvað sem ég hélt að væri frammúr mínum óla-prik teiknihæfileikum. Mér tóks að teikna eitthvað í one-point og two-point perspective OG skyggja. Já krakkar mínir, ég held ég sé næsti Picasso!


Sjáiði sérstaklega þessa niðri hægra megin sem er af matsalnum í Childcare Centerinu mínu. Ofur-falleg skal ég segja ykkur. Skuggar á veggjum og gólfi og allt útpælt... ég ætti að leggja þetta fyrir mig sko... ég er með eindæmum hæfileikarík!

haha... eða hitt þó... mér finnst endalaust fyndið að ÉG sé að teikna. Ég get ekki gert beina línu án þess að nota reglustiku!

Seinustu helgi heimsótti ég Rakel Örnu og Daniel til Orlando. Þau búa í Celebrations, Disney hverfinu og VÁ það er sko algert draumahverfi! Þetta er hannað þannig að þarna er allt til alls; spítali, hverfispöbbar, gönguleiðir, kallar á hestakerrum að keyra fólk um, lítil sæt vötn með gosbrunnum í, svo ekki sé talað um perfect skipulag á húsunum, en þau eru eins og í Despered Houswifes þáttunum. Þetta er hannað til þess að vera hið fullkomna hverfi sem hefur allt sem fólk þarf í stuttu færi og getur labbað í.
Við kíktum á djammið í Down Town Orlando fyrsta kvöldið, hittum þar John vin Daniels og svo var bara tjúttað. Við sáum þessar ofur-töff löggur á hestvögnum og urðum að fá mynd af okkur með... okkur þótti það allavega svaka sport.... þá!
Við hlógum reyndar endalaust af því að ýminda okkur þá á spretti með byssurnar á loft eftir einhverjum glæpó. Myndu þeir ekki vera skjálfhentir, svona á hestbaki??

Daginn eftir fórum við ÓVART í útimoll. Ég ætlaði bara rétt að kíkja í Nike factory en allur dagurinn endaði í búðum.... -úps-
Ég keypti mér samt bara einn Guess bol, var mjög sterk og hélt fast um veskið mitt. Tel mig góða! Rakel á annað borð er hand-ónýt í því... en hún er ekki orðin svona veraldarvön eins og ég því hún er jú bara nýkomin til lands verslanna.
Eftir búðarrápið þá héldum við heim á leið, og röltuðum á local pöbb þar sem við sátum þrjú og fengum okkur bjór og mat.

Anyways... ég er að hlaða inn nokkrum albúmum frá Tampa, New York road trippinu, heimsókn Hjördísar, og heimsókn til Rakelar og Daniels. Það gengur eitthvað brösulega útaf þessu nýja asnalega systemi hjá shutterfly. Nenniði að segja mér ef albúmin sjást ekki.

Kveðja frá Epla-garða-götu, eða Appleyard drive eins og kanar segja.




posted @ 10/07/2008 04:07:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu