myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

október 19, 2008



Enn ein helgin komin. Ég er bara í tímum á mán til fim svo mér finnst ég alltaf vera í helgar "fríi". Seinustu daga hef ég verið að undirbúa verkefni sem ég flyt á mánudaginn, en það er það fyrsta sem fer í Professional Porfolioið mitt (sem nemendur hér nota til að sækja um störf eftir nám). Það kemur gesta-gagnrýnir og horfir á og gagnrýnir okkur eftir flutning. SMÁ stress í gangi hjá eina útlendingnum í bekknum! :)
Ég fór í afmæli hjá írönskum strák seinustu helgi. Við fórum á Mori sem er japanskur sushi-staður og allt gert fyrir framan mann.

Hér er verið að gera okkar mat.
Ayumi, ég, Kristi og Karolina
Ayumi, Ali kærasti hennar og Poya afmælisbarn
Ég og Nathan
Eftir það var smá fyrirpartý í heimahúsi og svo fórum við á MINT sem er svona ekta íslenskur skemmtistaður-lounge. Kristal ljósakróna í loftinu, fiskabúr í gólfinu og maður gat setið úti í sófum og pantað sér áfengi. Kannski ekkert íslenskst að geta setið úti, en allt var svo fínt og allir upp dressaðir svo mér leið eins og ég væri bara í 101.

Við erum búin að kaupa flugmiða heim!! Lendum 15.desember, en eigum eftir að kaupa miða til baka trallalaaa. Það reddast vonandi. Finnst óttalega sorglegt að hugsa til þess að ég kem bara um jólin, svo ekkert um sumarið... :( En sem betur fer ætla Helga og Stebbi að heiðra okkur með návist sinni. Rakel Arna er stutt frá en hún fer reyndar í febrúar heim til Íslands.

Jæja, ég læt fylgja með myndir af næsta verkefni (svona meira fyrir mömmu&pabba). En þetta er single-dormatory room. Eða bara herbergi í heimavist:)


Presentation board

Model

Kiss kiss úr sólinni


posted @ 10/19/2008 12:51:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu