september 15, 2008
Við vorum að koma heim til Tallahassee, en við kíktum í heimsókn til fjölskyldu strákana í Palm Beach um helgina. Það var mjög fínt og afslappað. Í gær grillaði Eyjó steikur og kjúkling og bjórinn var að sjálfsögðu ekki langt frá. Eftir matinn sátum við úti í garði og fórum svo í heitapottinn, en það er svaka pottur með innbyggðum græjum, ljósashowi og fíneríi.
Ég fékk svo loksins Jampa Juice Peanut Butter Mood ... MMMMM!! En það eru engir Jampa Juice hé
r
fyrir norðan.
Rakel Arna lendir í ameríkunni á morgun!! Ég vonast til að geta heimsótt stelpuna um leið og skólinn leyfir. Svo kemur Hjördís tengdó til okkar þriðjudaginn eftir viku svo er nóg að gera :)
Æðislegt að fá Íslendinga svona þegar maður býr einn og yfirgefinn einhverstaðar í norður Flórida :)
Skólinn gengur bara vel enn sem komið er. Búin að flytja fyrsta verkefnið mitt, en það næsta verður eftir viku og við eigum að hann a"Children Childcare Center". Þetta er mjög skemmtilegt í heildina, en það er svaka ferli að gera þetta. Við eigum að kynna okkur ALLT sem tengist plássinu. Þurfum að kynna okkur burðarveggi, pípulagnir og fl.
Hér er lokaverkefnið mitt síðan í sumar. En við áttum að hanna listasafn sem hýsir listaverk eftir finnska arkítektinn Alvar Aalto. Mitt "concept" var einn af vösunum hans, svo ég byggði safnið í anda þess. Þ.e formið er svipað og vasinn, notaði mikið af gleri (stólparnir eru þar sem glugginn á að vera). Hver listaverk hafði sínar sérþarfir, td. eitt mátti ekki vera í sólarljósi, annað þurfti að sjást frá báðum hæðum og fl.


Hér sjáiði tæní lyftu og fl. details... annars er þetta frekar stórt módel og sést ekki vel á myndinni.
Annars er ég reið útí dollarann fyrir að hækka svona.... svo er bensínið BÚIÐ hér í Tallahassee... án gríns!! Það eru allar bensínstöðvar búnar að breiða poka yfir dælurnar og bara att bú!
Við sáum líka raðirnar á bensínstöðvarnar þegar við lögðum af stað úr bænum á fös... allt útaf fellibylnum.
Jæja, nú skora ég á ykkur vinkonur að byrja að blogga aftur eins og þið gerðuð. Mér finnst ég svo útúr :( Vil vita hvað er að gerast og svona heima :)
Kiss kiss
Maggalaggalá
posted @ 9/15/2008 03:05:00 f.h.