september 06, 2008
Þá er skólinn kominn á fullt skrið aftur.
Í sumar var lítið mál að finna stæði í bílastæðahúsinu, en þó þurfti ég að labba svo í ca. 7 mín að innannhússarkítekta byggingunni.
Núna er skólinn STAPPAÐUR og ekkert stæði að finna, bókstaflega!
Ég á að mæta á þri og fim kl. 11 og er oftast mætt í bílastæðaleit um 10, en er samt alltaf of sein í skólann!
Það er rosalega þung umferð um skólalóðina (sem er HUGES), og allir sitja fyrir gangandi vegfarendum í von um að þau séu að fara.
Seinasta fimmtudag þá var ég mætt tímanlega og ætlaði að leita af stæði, en þegar ég var að verða of sein þá legg ég hjá bókabúðinni sem er á vegum skólans. Þegar ég kem aftur þá er búið að DRAGA bílinn í burtu!! Þegar ég sótti hann var mér sagt að hann hefði verið dreginn kl. 11:15 (búinn að vera þarna í ca. 20 mín) og ég fékk sekt uppá 6þús !!!
Ég var ótrúlega ósátt... ég var að borga 660.000 kr. í skólagjöld og má hvergi leggja!
Annars er skólinn ekki eins þéttur og í sumar. Næ að anda núna, eða enn sem komið er allavegana.
Ég fór með Karolinu og Kristi út að borða á Mexicanskann stað hér rétt hjá seinustu helgi, en eftir það í partý með Kristi. Í gær var pókerkvöld hjá mér, Viktori og Fannari. Annars fara flestir virkir dagar bara í það að læra.
Við erum reyndar mjög dugleg í ræktinni, förum næstum því á hverjum degi. Keyptum okkur kort hér í Gold's gym, 4þús til að opna reikning og svo 1200 má mán! Ekki slæmt.
En ég nenni ekki að fara í FSU gym, nenni ekki að leita af stæðum allann daginn...
Þetta er svona það helsta að frétta...
Miss you!
posted @ 9/06/2008 06:09:00 e.h.