myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

ágúst 23, 2008



Hér kemur eitt laaaangt.....

Ég kláraði sumarinnina þann 8.ágúst, og fékk að vita sama dag að ég komst inn! Svo við verðum áfram í Tallahassee meðan ég klára skólann. Sama dag og ég kláraði fórum við ásamt Viktori og tveim vinum hans frá Íslandi til Tampa. Þar fórum við í Busch Garden, spilavíti og mallið. Eftir það var bara pókerkvöld og bjór heima hjá Viktori flest kvöld. Lindsey kom frá Conneticut og var hér í viku og við kíktum öll á pool-bar og fl.

Ég vaknaði þarseinasta miðvikudag og fékk þá flugu í hausinn að mig langaði til New York bara NÚNA! Eftir að hafa sannfært Fannar (var ekki erfitt!) þá lögðum við af stað. Tók aðeins lengri tíma að komast af stað þar sem ég hafði asnast til að fara í litun hér og var appelsínugulhærð (bað um að lýsa hárið aðeins, en það var bara sett á full-bleach takk fyrir...) Ég litaði það þá SJÁLF ljósbrúnt til að dempa litinn, en varð fjólu-grænhærð... tónninn í því allavegana. Ég ætlaði sko EKKI að eiga myndir af mér fyrir framan hvíta húsið og eitthvað þannig útlítandi, svo ég keypti lita-hreinsi og lét það í hárið og sá litur fór út, en ég varð eftir með gula hárið... það var þó skömminni skárra! ... og þó!

Við höfum allaf talað um að keyra til NY en aldrei haft tíma í það... en eftir að Rutta og co. voru á flakki líka þá fannst ég VERÐA að nota þetta frí í það!

Skelli ferðinni upp svona:

Dagur 1: Við lögðum af stað um átta leitið um kvöldið og gistum í Savannah.

Dagur 2: Keyrðum við til Baltimore og gistum þar.

Dagur 3: Fórum til New York og um LEIÐ og v keyrum inná Manhattan stoppar löggan okkur og Fannar fékk sekt fyrir að tala í símann (það er löglegt á Flórida, maður á greinilega að lesa stjórnarskránna til að ferðast hér um). Svo hittum við Gumma og rötluðum um Central Park. Settumst niður á Boat House og fengum okkur bjór í góða veðrinu. Svo löbbuðum við bara um, kíktum á Time Square og fl, en enduðum á Írksum pöbb og fengum okkur að borða.

Dagur 4: Sáum Guggenheim húsið eftir Frank Lloyd Wright.

Bygging sem ég er búin að læra mikið um og gera verkefni eftir. Svo fórum í Museum of Natural History sem var ÆÐI!! Myndin "Night at the Museum" var einmitt tekin upp þar.

"Dumm dumm... give me gum gum" -styttan úr Night at the Museum...

Eftir það tókum við subway lengra niður í Central Park og löbbuðum um garðinn í góða veðrinu. Fórum út að borða á Hard Rock á Time Square og svo í Empire State á 102 hæð takk fyrir! Fórum svo uppá hótel, en við gistum í New Jersey meðan við vorum í NY.

Dagur 5: Tékkuðum okkur útaf hótelinu, keyrðum til Manhattan og fórum að bryggjunni hjá Frelsistyttunni, en röðin var alltof löng, alltof heitt úti og svo sáum við hana alveg frá bryggjunni svo við nenntum ekkert að bíða.

Tókum bara myndir og héldum af stað til China Town. Þar var allt fullt af “metnaðafullu sölufólki“ sem reyndi eins og það gat að troða á mann fölsuðum vörum... dró mann inní herbergi bakvið hjá sér og sýndi fólki varninginn. Löggur útum allt fyrir utan en þau fóru mjög „leynt“ með allt saman hehe. Fyndið að sjá það. Við prúttuðum nú alveg slatta : ) Eftir það ævintýri þá löbbðuðum við um Soho og versluðum aðeins þar líka. Hittum Gumma seinna og fórum á Planet Hollywood. Um kvöldið keyrðum við af stað til Baltimore og gistum eina nótt.

Dagur 6: Keyrðum til Washington og sáum Hvíta Húsið, Abraham Lincon styttuna, háa memorial dæmið þarna til heiðurs hermanna, styttuna úr Flag‘s of our fathers, og svo keyrðum við framhjá Pentagon. Enduðum á pöbb og fengum okkur að borða.

Fannar var í svakalegu stuði þann dag og keyrði alla leið heim, fyrir utan nokkra tíma sem ég keyrði, en það var alveg 14 tíma bílferð!

Skólinn byrjar á mánudaginn... ég hefði viljað fá lengra frí en svona er það. Við erum búin að taka íbúðina í gegn, þrífa, henda öllu drasli og endurraða inni.

En ég er hætt í bili...



posted @ 8/23/2008 10:53:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu