júlí 08, 2008
Þá eru bara 4 vikur eftir, samt var að byrja nýr áfangi sem þýðir MIKIL vinna í mánuð. Bara í þessum áfanga eru 2 verkefni í VIKU sem við eigum að kynna, tala nú ekki um að vinna að þeim og búa til módelið... það er varla tími til að sinna hinum tveim áföngunum sem ég er í.
En sem betur fer er þetta meira en hálfnað... Ég skal hætta að kvarta um þetta blessaða nám... get ekki ýmindað mér að það sé skemmtileg að lesa:)
Fyrir tveim helgum síðan kláraðist fyrri hönnunaráfanginn (it has a point, I promise!), ég hafði vakað alla nóttina við að klára verkefni og möppu sem ég átti að skila inn og kynna fyrir bekkinn. Fannar besti vakti alla nóttina með mér og hjálpaði mér mikið, og þegar ég var búin að kynna þá sváfum við allann daginn, enda var lítið um svefn þá vikuna. Við vöknuðum um 2 um nóttina og ákváðum að skella okkur bara til suður Flórida... við fengum Viktor on board og brunuðum niðreftir. Við vorum komin til Miami um 11 leytið um morguninn, hittum Gumma og spókuðum okkur um á South Beach. Strákarnir fóru á Írskan bar meðan ég stalst í labbitúr í búðir. Keypti mér þetta fallega DKNY úr :)
Seinniparturinn fór í "Bodies", eða safn sem hefur að geyma alla parta líkamans, búið að steypa alvöru líkama í form og þetta er þarna fyrir framan mann eins og í líkhúsi, nema allt stillt upp. Við héldum á heila, sáum fóstur á mismunandi stigum og fl ógeð... en gaman að upplifa svona. Um kvöldið fórum við yfir til Palm Beach að heimsækja pabba strákana og fjölskyldu. Eyjó grillaði eins og honum einum er lagið, enda kokkur, og svo tók drykkja við.
Seinusta föstudag var 4.júlí sem er eins og flestir vita þjóðhátíðadagur kana. Við fengum frí á fimmtudeginum líka því það eru svo margir sem fóru heim til sín og fengu dag til að ferðast. Við notuðum tækifærið og keyrðum aftur niður til Miami og hittum Gumma og Guðna vin hans, en hann var svo góður að leyfa okkur að gista hjá sér. Það var party heima hjá honum á þjóðhátíðardaginn og húsið fylltist af fólki. Íbúðin hans er staðsett rétt fyir ofan ströndina svo við sáum flugeldasýninguna frá svölunum. Eftir það fórum við á opnun Dolce, skemmtistað sem kærasta herbergisfélaga Guðna vinnur á. Hann er risa stór og svakalega flottur! Rakel Arna, ef þú lest þetta þá förum við þangað þegar þú flytur;);) Daginn eftir kíktum við á ströndina og skoðuðum okkur um á Ocean drive.
Svo eigum við Fannar 3 ára afmæli á morgun:) Strákarnir eiga svo 22 ára afmæli 7. ágúst, en ég verð á fullu þann dag því ég á að skila öllu af mér 8.ágúst.
En af því að hann á allt skilið fyrir alla hjálpina í gegnum þessa önn, þá ætla ég að bjóða honum í siglingu til Bahamas í afmælisgjöf. Ekki slæmt það:)






posted @ 7/08/2008 04:42:00 e.h.