júlí 25, 2008
Þá er þessi pjakkur orðinn 1.árs.
Leiðinlegt að missa af því, en hann hafði víst ekki undan því að opna pakka í fínu skyrtunni sinni. Orðinn svo stór!
Maður verður að lesa kortin sín....

Svaka mikið að gerast hjá mínum...

Stilltur upp með mömmu...

Núna eru akkurat tvær vikur í annarlok. Allir að fara á taugum, og ein gafst upp. Sem er samt mjög skrítið því í fyrrasumar þá voru aðeins 9 af 20 sem náðu að klára allt/meikuðu út önnina. Minn hópur er líka samansafn af krökkum sem koma af listabraut og prófessorunum finnst við vera einn besti hópurinn lengi. Nema ég, ég kann ekki baun.
Ég var í hópvinnu þessa vikuna þar sem við áttum að stúdera arkítektinn Frank Gehry og hanna fuglahús út frá hans aðferðum. Það fór mest í hlátursköst, walmart-ferðir því alltaf vantaði eitthvað, mistök og nammiát. Þegar við kynntum þá hló kennarinn endalaust af fuglunum mínum því ég bjó til þessa sætu fugla úr bökunarleir og málaði gyllta í anda hússins okkar, og þeir voru svona svakalega fínir að kennarinn sá mig bara fyrir sér sitja og leira þá allann þennann tíma. Hann er svo skondinn þessi kall! :)
Þessi stelpa sem átti heima þarna sem við vorum hjá er ein af þeim sem náðu ekki að klára allt í fyrra. Hún datt út nokkrum dögum bara fyrir matið. Hún sagðist hafa vakað næstum því í 4 sólahringa við að klára lokaverkefnið sitt en náði því ekki!! Hún fékk undanþágu og fékk að taka allt aftur, sem má venjulega ekki.
Næsta verkefni byggist á að gera skil á rými. Við fengum öll úthlutaðar búðir í mollinu og eigum að fara þangað, mæla, teikna, skrifa niður og túlka þá búð (ég þarf varla að fara á staðinn, hóst hóst... ). Svo eigum við að gera "non-literal" interpretation á því rými. Við eigum svo að skila af okkur litlu módeli á mánudaginn, og á miðvikudaginn kynnum við alvöru módelið ásamt öllu ferlinu sem við fórum í gegnum á löngum renning.
Þá eftir það er bara lokaverkefnið eftir og svo bara BÚIN!!! Mikið verður gott að komast í smá frí, þótt það sé kannski bara vika...
Fannar fór til pabba síns í Palm Beach með Gumma í gær og þeir koma aftur á morgun.
Við kíktum út að borða á Mexicanskann stað sem selur þessar RISA margarítur, og fórum svo í pool.
Það er nánast það eina sem ég hef gert held ég bara.... svo það er ekkert að frétta.

posted @ 7/25/2008 09:35:00 e.h.