júní 29, 2008
Mætt aftur!
Þegar maður ætti að vera að læra þá virðist alltaf hentugur tími til að gera allt annað. Í dag fórum við Fannar og Viktor til Hilmars og Kristínar, Hilmar er fyrrverandi consúll hér f. Íslands hönd og við erum alltaf velkomin til þeirra. Eins og að hafa ömmu og afa hér:) Eftir það fórum við á myndina The Happening sem var frekar skrítin... Strákarnir eru yfir hjá Viktori í póker og ég ætti að vera að vinna að tveim verkefnum, eitt á ég að flytja á mánudaginn og hitt er lokaverkefnið í þessum áfanga. Ég á að hanna klukku, en hún á að vera útfrá einhverju af verkefnunum mínum, með allskonar reglum í kring og þarf að virka! Ég hef ekki hugmynd um það hvernig ég eigi að fara að því að byggja klukku... en ég hef viku til að klára. Hér eru nokkur verkefni sem ég hef verið að vinna að:
Hér áttum við að skera út speglun. Conceptið var Happyness eða Sadness.
Hér áttum við að nota gráan, svartan og hvítan lit. Stærðin á verkunum áttu að vera 9x12" og við áttum að finna form (ég valdi kassa og þríhyrning) og búa til samsetningu úr tveim mismunandi stærðum af formunum, og þau þurftu að passa rétt yfir allt svæðið. Það var EKKI auðvelt að púsla því saman. "Stiginn" þarna hvíti eru fullt af litlum þríhyrningum ... Eg fékk mitt A og kennarinn var mjög sátt :)Svo er ég í techical drawing tímum þar sem við erum að hanna okkar eigin skrifstofuhúsnæði -handteikna. Við fáum grófar teikningar frá "fyrirtækinu" okkar og eigum að láta sem við séum að gera þetta fyrir kúnna. Við setjum alla innveggi, hurðar, glugga, húsgögn og eigum svo að velja líka áferð, þ.e hvað allt er gert úr. Í lokin skilum við svo inn fullbúnu hefti sem fer beint í review ið/valið á þeim sem komast inn. Mér gengur mjög brösulega þar sem ég kann bara á metrakerfið góða, en skil ekki upp né niður í inches og öllu því! En kennaranum finnst það bara krúttlegt (segir það alltaf hehe) og aðstoðar mig. Hún er um fimmtugt, alger pæja og gjörsamlega á gelgjunni, ótrúlega fyndin kona. Gaman að því :)
Við vorum að spjalla saman um það hvernig færi ef ég kæmist ekki inn, og sú hugmynd kom upp að reyna að komast inn i skóla í Miami. Það væri alveg æði að búa þar held ég, nema þessi skóli er rándýr einkaskóli og það er allt tíusinnum dýrara þar en hér... en það kemur allt í ljós. Ég er búin að vera svo stressuð yfir þessari sumarönn og hvort ég kemst inn, að það er huggun að vita að það er fleira í boði.
Næstu helgi ætlum við að skella okkur niður til Palm Beach til pabba strákana. Myndum gista eina nótt hjá honum og sennilega eina á South Beach hjá vin Gumma. Þá verður sko slappað af! Nauðsynlegt að komast í burtu frá þessu öllu hérna...
En skemmtið ykkur heima, frétti af góðu veðri... öfund í gangi hér þar sem við höfum bara raka og leiðindi:)
Knús!
♥~*Ãg*~♥
Margrét heiti ég og er fædd 2.aprÃl 1983. Stúdent frá FG. Ãg bý à Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mÃnum og stunda hér nám à innanhússarkÃtekt:)
♥~*Gestabókin*~♥
♥~*Myndir*~♥
Skoða myndir!♥~*Hafðu samband*~♥
♥~*Vinir og vandamenn*~♥