myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 19, 2008



HÆ HÓ!

Skulda ykkur blogg svo hér kemur eitt all svakalegt:

Á þriðjudaginn næsta eru 3 vikur síðan við lentum í Tally en mér finnst við hafa komið í gær. Gummi bróðir Fannars útskrifaðist úr Fsu Law School helgina eftir að við komum og við forum á athöfnina sem var haldin í risa stórum leikvangi.

Á mánudeginum forum við á ströndina við St. George Island sem er lítil og krúttleg eyja í um 2 og hálfan tíma í burtu. Við leygðum öll, semsagt við Fannar og Viktor, Gummi og vinir og ættingjar hans úr eyjum, og svo David sem útskrifaðist með Gumma og kærastan hans, þriggja hæða einbýlishús með sundlaug og öllu tilheyrandi. Algert æði!

Ég fór í tvær orientation, eina fyrir alla nýnema og svo aðra fyrir international students. Á þeirra fyrri áttum við að standa upp og læra hvatningarsönginn fyrir fótboltalið skólans, Seminoles og þá fékk mín nettann kjánahroll!! Ekki útaf söngnum, heldur líka meðfylgjandi hreifingum…

Áður en ég fór í orientation, eða rétta sagt, áður en ég MÁTTI fara inní salinn, þá var ég send í sprautu! Mig vantaði þá einhverjar sprautur á sprautuskýrsluna mina og var bara bannað að koma inn fyrren ég væri búin að fara yfir á heilsugæsluna og láta sprauta mig. Ég gjörsamlega skalf, ég er svo hrædd við nálar. Bað eins og smábarn um að passa að ég sæi ekki sprautuna og konan vorkenndi mér svo, hehe.

Skólinn hjá mér byrjaði svo 12.maí og síðan þá hef ég flutt tvö verkefni fyrir bekkinn… á EINNI viku!! Ég næ varla að anda fyrir heimavinnu, og það er ekki bara stress um að NÁ áföngunum, heldur líka erum við 20 og einnig 40 aðrir sem tóku þetta í vetur, að keppast við að komast inn á brautina í haust. Í lok annarinnar verður “review” þar sem nefnd tekur sig til og fer yfir hvert einasta verkefni sem við gerðum. Við eigum m.a að hand teikna “blue print” af einbýlishúsi og þar verður hver einasta lína skoðuð, hvort pappírinn sé nógu hreinn, og sjónarhornin perfect.

Það er mikil samkeppni meðal okkar, þar sem margir af krökkunum koma af listabrautum og eru mjög vel að sér að teikna.

Ég hinsvegar, get alveg næstum því teiknað óla prik!

Ætti ég að vera hrædd??

En yfir í annað. Fannar og Viktor keyrðu til Tampa og sóttu Tony, lítinn sætann hvolp sem Viktor keypti, og ég er að passa akkurat núna: )

Svo týndist ég á skólalóðinni á fimmtudaginn… ég ætlaði í fyrsta sinn að keyra sjálf í tíma, lagði af stað svaka snemma og með kortið reddí. Þegar ég keyri framhjá innanhússarkítekta byggingunni þá finn ég engin stæði svo ég keyri bara áfram og finn risa bílastæðahús. Ég legg bílnum, legg hæðina á minnið og hvernig húsið leit út.

Nei ég er varla komin út þá er ég TÝND. Ég labba í hringi og bið pylsusjálfsala konuna að visa mér veginn og ég komst í tíma.

En þegar ég ætla að fara heim, þá var AÐEINS meiri vandi á ferð. Ég hafði ekki HUGMYND um hvar þetta helv. bílastæðahús væri! Ég stóð þarna út á horni og horfði í kring, en ÖLL húsin eru byggð úr rauðum múrsteinum og líta alveg eins út! Tala nú ekki um háu trén sem gera manni erfitt fyrir að sjá fram fyrir sig.

Þarna labbaði ég útum allt, spurðist fyrir um bílastæðahúsin og mér bent á hitt og þetta. Ég sá bílinn hvergi á annari hæð í neinum af þessum húsum svo ég hringdi í Fannar og ætlaði að biðja hann um að finna fleiri bílastæðahús á lóðinni því ég skildi auðvitað kortið eftir útí bíl. Þegar hann er að skoða kortið þá verð ég batteríslaus, og ekki nóg með það, heldur þegar ég ætlaði að fara inná skrifstofu til að fá að hringja, þá var nýbúið að loka!

Þarna var ég gjörsamlega ein, týnd og símalaus og leist ekkert á stöðuna. Þá fór ég að spá hvort bílinn hefði nokkuð verið dreginn í burtu þar sem ég á að hafa bílastæðamiða en hef ekki fengið minn sendann í pósti enn. Í örvæntingu minni labbaði ég að svona neyðarstaur þar sem maður ýtir á takka og fær samband við Campus Police. Ég þurfti að segja þeim að ég væri týnd og finndi ekki bílinn minn. Þeir sendu löggubíl eftir mér sem pikkaði mig upp, ég útskýrði fyrir honum hvar ég hefði verið í tíma og hann kíkti í tvö bílastæðahús, og í því seinna fann ég bílinn!!

Mér til varnar ætla ég að sýna ykkur kort af skólasvæðinu, þá kannski skiljiði:)

http://www.fsu.edu/map2007/2007-MapPRINT032500.html

Hér er einnig heimasíða skólans: http://www.fsu.edu/

En svona til að toppa vitleysuna í mér, þá ætla kíkti ég í ræktina og er nottla ekki búin að fá bílastæðamiða, svo ég skellti FSU skírteinunu mínu á mælaborðið á bílnum til að sýna að ég væri nemandi. Þegar ég kom til baka þá þurfti ég að SKAFA kortið upp því það bráðnaði!

Já ég er soddan sauður…

Til að færa athyglina af mér, þá ætla ég að segja ykkur frá því að þegar við Rakel Arna og Elma forum út að borða á Planet Hollywood, þá er alltaf svona stytta af kalli með hnöttóttann haus á borðunum, og það var strákur á næsta borði sem hafði FEST hendina á sér ofaní styttunni! Hann var þannig í dágóðan tíma meðan þjónarnir kepptust við að koma með allskonar olíur og dót til að losa hann… við gátum ekki haldið tárunum aftur! Hahaha

En já, ég var semsagt að koma frá Orlando bara núna áðan, þar sem ég gisti með stelpunum í tvær nætur í húsi sem þær leygðu. Kíktum á Fridays á föstudaginn og fengum okkur kokteila. Laugardagurinn fór í mollin og Nike factory. Svo út að borða á Planet Hollywood eins og ég sagði áðan, og eftir það röltuðum við yfir í downtown Disney og forum á skemmtistað þar sem var tjúttað til að verða 2, en þá lokar öllu hér.

Næstu helgi ætla ég svo að elta þær uppi í Tampa (já þær losna ekkert við mig!). Þar ætlum við að mana hvora aðra uppí fallhlífastökk… sjáum til hvernig það fer!

Annars þarf ég bara að læra allann sólahringinn nánast núna, alveg ótrúlega mikið stress útaf þessu review, eða mati sem fer fram eftir önnina. Ég þarf að hitta ráðgjafa sem fyrst til að búa til plan 2, þ.e hvað ég get gert ef ég kemst ekki inn. Ætli ég verð ekki bara að brosa og vera sætur klaufalegur útlendingur og láta þau vorkenna mér svo mikið að þau geta ekki annað en valið mig: )

Þá er þessi ritgerð búin, trúi ekki að þið nenntuð að lesa…

Kveðja frá Flórida :=)



posted @ 5/19/2008 12:43:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu