myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

apríl 15, 2008





Tíminn á Íslandi hefur flogið frá okkur. Núna eru aðeins rétt um 2 vikur þar til við förum aftur út.
Ég fékk nett sjokk fyrir áramót þegar mér var sagt að ég þyrfti að vera næstu tvö sumur í skólanum , því það þýddi það að við yrðum úti 2 ár straight. Það er svosem ekkert hræðilegt þannig séð, en það er ekkert gaman að vera svo lengi fjarri fjölskyldu og vinum. Þess vegna varð ég líka svona rosalega ánægð þegar mér var tilkynnt að 3.árs matið væri eingöngu á sumrin og við fengum svona langt "early-sumarfrí".

Það er búið að vera ágætis glugga-veður seinustu
daga. Vorið kemur hægt og bítandi... brrr
Við Helga héldum uppá sameiginlegt FIMMTUGSAMÆLI þann 20.maí hvorki meira né minna. Við skemmtum okkur allavegana konunglega og þökkum æðislega fyrir okkur:**

Á afmælisdaginn minn, 2.apríl þá fékk ég sms frá heittelskaða um að mér væri boðið á flottasta skyndibitastað heims, McDonalds um kvöldið og ætti að hafa mig til og vera fín. Ég var sótt um 20:00 og lá leiðin í Perluna þar sem við snæddum dýrindis nautalundir, 400gr á mann takk fyrir! Ég er svo mikil dama að ég spurði þjóninn hvort ég mætti ekki bara taka helminginn með mér heim híhí... svona svo ég hefði pláss fyrir eftirréttinn og svona:) Eftir matinn kíktum við upp á barinn og fengum okkur kokteila. Ótrúlega næs að sitja þar bara tvö og spjalla:)

Við Rakel Arna okkur á B-5 um daginn og fengum okkur humarsúpu sem var sko to die for. Eftir það pæjuðumst við í kringlunni. Um kvöldið fór ég í stórafmæli hjá henni Huldu þar sem við létum aðeins of mikið eins og kjánar, eða meira svona fimmára-kjánar. Það er bara gaman:)
Daginn eftir fórum við Fannar svo ásamt Stebba og Sigrúnu á árshátíð hjá strákunum í Borgarnesi. Þar sem þetta er alger strákavinnustaður þá var dagskráin fekar óplönuð og rosalega afslappað alltsaman sem var ekkert nema skemmtilegheit. Þegar við mættum voru allir í pottinum. Við fórum bara inná hótelbarinn og spiluðum og drukkum. Maturinn var svo æði. Eftir matinn var svo bara opinn bar, gítarspil og partý :)

Ég fer í viðtal í sendiráðinu á fimmtudaginn. Komin með alla pappíra frá skólanum og þetta langa fallega og virðulega "velkomin til Florida State University" bréf. Það er svo fyndið hvað skólarnir leggja mikið undir sig. Það stóð m.a í bréfinu að ég væri velkomin í "stórfjölskyldu Seminoles" sem er lið skólans. Piff...
Æ svo verð ég kannski hoppandi skoppandi trítilóð á öllum leikjunum þeirra á endanum ...

Skrifa næst frá Flóró!


posted @ 4/15/2008 10:53:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu