mars 09, 2008

Vá hvað ég hef verið löt að skrifa hér.
Maður er nú sosum búin að gera ýmislegt seinustu daga. Stelpuhittingar, djömm, heimsóknir, og svo seinustu helgi skelltum við okkur, ég, pabbi, Halldóra, Rakel og Dagur okkur uppí bústað sem pabbi fékk í láni. Restin af familíunni var upptekin. Við byrjuðum á því að versla í matinn og var það sælgætið í aðalhlutverki. Kassi af prins polo, risa machintosh dolla, 12 lítrar af kóki og tveir fullir pokar í viðbót af nammi og gúmmelaði. Við elduðum steik, ég og Rakel fengum okkur bjór í pottinum, spiluðum og höfðum það kósý.

Ég fór svo út að borða á Vegamótum með vinum Fannars og mökum
í gær. Rakel Arna kom og hitt okkur og svo Ruttan sem ég hef ekki séð í ár og aldir. Voða kósý að sitja s
vona og spjalla. Vorum reyndar alltof rólegar svo því verður bætt úr næstu helgi.
Dagur Hrafn stækkar og stækkar... kominn með tvær tennur og í dag sáum við bitför eftir tvær litlar tennur á handarbakinu hans. Einn svaka sáttur með tönnslurnar að hann finnur ekkert fyrir bitunum. Svo er hann að fá svo mikið hár, kominn með ljósar krullur fyrir ofan eyrun. Gæti borðað hann!

Við förum aftur út 29. apríl, og það styttist óðum í það. Bróðir Fannars leigði hús á ströndinni sem við ætlum að spóka okkur í fyrstu dagana. Kvíði svo fyrir hitanum í sumar. Elska snjó! Að sitja í kennslustund í sumarkjól með sólgleraugun á höfðinu hljómar kannski vel... en mér líður alltaf eins og það sé að líða yfir mig af hita. Fæ Monicu hár og læti...
Ég er reyndar ekki ENN komin með svar frá skólanum, og hvað þá landvistarleyfi... en það reddast. Ég sá það á heimasíðu deildarinnar að innanhússarkítektadeild FSU hefði verið kosin í 2. sæti yfir BESTU skólana "in the Sun Belt" 2007 ... sem þýðir víst Texas til Virginíu. Það er ansi stórt svæði í þessu stóra landi svo ég er bara yfir mig spennt! Helga er búin að gera upp hug sinn varðandi námið og hún ætlar að koma með mér :D Þá varð ég enn spenntari! Við ætlum sko að troða okkur í nefndir og taka þátt í öllu. Það eru hönnunarkeppnir og allskonar uppákomur í gangi. Líka svo fáir sem komast inn að þá myndast vonandi gott samband milli allra. Until later...
posted @ 3/09/2008 08:06:00 e.h.