myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

janúar 30, 2008





Já já ég veit... ég er ekki besti bloggari í heimi...

En það hefur bara svooo lítið verið að gerast eftir að ég kom heim. Jól og áramót þutu frá manni, en voru ansi kósý. Núna er ég að vinna í Sporthúsinu alla virka daga, en helgarnar hafa einkennst af skrautlegu partýstandi, enda er komið gott í bili:)
Fannar vinnur og vinnur... held hann sé að safna sér fyrir skemmtiferðaskipi... eða eyju... drengurinn vinnur frá 8 á morgnana til lágmark 18 á köldinn. Í gær vann hann 14 tíma. Svo duglegur þessi elska.
Ég ætlaði að bjóða honum út að borða á Bóndadaginn. Þegar við vorum alveg að koma niður í bæ er ég stoppuð af löggunni útaf því að hljóðkúturinn hafði slitnað undan bílnum og hékk bara þarna afturí. Þá var ég spurð um skilríki, en ég var bara með ameríska skírteinið mitt og fór að afsaka mig... mjög trúverðugt auðvitað fyrir lögguna:S
Meðan önnur þeirra hringdi niðrá stöð til að staðfesta skírteinið mitt, kemur hin og segir að bílinn sem ég var á hafði ekki verið skoðaður síðan 2006!! Ég afsaka mig enn og aftur og segist vera á bílnum hans afa gamla (sem er dagsatt) og ég fengi að vera á honum í nokka mánuði.
Sure hon!
Mér leið eins og stór glæpon...
Ég skammaðist mín í kaf!

Við fórum heim, tók Rakelar bíl og fórum á Nings...
Frábær kærasta þarna á ferð...

Jæja... vildi bara láta vita að ég væri komin á klakann... ekki meiri sól þar til í Maí. Við erum reyndar ekki búin að fjárfesta í flugmiðum, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki hugmynd um hvenær ég þarf að vera mætt. Er að vinna í pappírsvinnu fyrir skolann og allt tekur sinn óratíma.
Rakel Arna og Elma voru hinsvegar að næla sér í miða til New York og Orlando. Ég mun bruna til þeirra meðan þær verða á FL. Hlakka til!

**Magga**



posted @ 1/30/2008 06:28:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu