desember 04, 2007
Nú er seinasta vikan í skólanum að verða hálfnuð og verkefnin hlaðast upp. Lokaprófin skella svo á strax á mánudaginn :S
Ég hef alltaf verið þessi last-minute manneskja, en það hefur breyst þessa önn þar sem við erum búin að ferðast frekar mikið og ég hef vanið mig á að læra með margra daga fyrirvara til að getað komist í burtu. Svo það er ekki mikið stress fyrir lokaprófin að þessu sinni.
Ég fór þarseinustu helgi og hitti Ruttu í Orlando. Ég gisti hjá foreldrum Kalla í tvær nætur, og á fimmtudeginum héldum við uppá Thanksgiving með kalkún og viðeigandi meðlæti. Um kvöldið sáum við í sjónvarpinu raðirnar sem höfðu myndast við verslanir. Fólk liggur við tjaldaði í röðunum! Svo keyrðum við í Outletin eins og hver einasta manneskja stödd í Orlando, til að versla á “Black Friday” útsölunum. Það var allt crazy og fólk útum allt. Við Rutta snerumst eiginlega bara í hringi við vissum ekkert hvar átti að byrja. Þegar klukkan var um fjögur að nóttu fórum við í Florida Mall og kláruðum innkaupin þar. Ég hélt ég myndi gjörsamlega HRYNJA niður úr þreytu, en við versluðum frá miðnætti til eitt eftir hádegi daginn eftir!! Úfff...
Á föstudeginum (eftir að hafa lagt mig) þá keyrði ég til Palm Beach. Þar hitti ég fjölskyldu Fannars, en fór bara að sofa snemma, úrvinda úr þreytu eftir verslunar-brjálæðið. Daginn eftir fór ég með Alexöndru litlu systur Fannars í Mallið í hverfinu þeirra (já ég veit ekki hvernig ég nennti því.... en svona er maður mikill shopping-sjúklingur!). Við rúntuðum um í góða veðrinu með Britney í botni og pæjuðumst í mollinu. Hún er bara 11 ára en mjög þroskuð miðað við aldur, og hún sýndi mér allar flottu búðirnar. Hló meira að segja af barnalegri mér þegar ég skoðaði í Hello Kitty búð... isss... Við enduðum á Starbucks og létum eins og kjánar þar.
Síðan hefur lærdómur átt hug minn allann. Ég keypti mér risa stóra ferðatösku um daginn svona til að allt komist nú örugglega með mér, svakalega ánægð með það.
Karolina sagði mér svo um daginn að hún væri svona semi skotin í efnafræðikennaranum okkar! Sko þessum sem ég er alltaf að hlægja af! Ég dó úr hlátri og er búin að stríða henni síðan. Geri í því að draga hana með mér inná skrifstofu hjá honum til að fá aðstöð við verkefni:) Hann er svo mikill klaufi greyið og algerlega glórulaus yfir okkur vitleysingunum:) Já það er gott að eitthvað skemmtir mér!
Þegar ég kem heim ætla ég að fara beinustu leið í ræktina. Kem kannski aðeins við heima hjá mér og skila af mér töskunum. Ræktin hefur algerlega setið á hakanum þessa önn... úps. En ég ætla að planta mér á hlaupabrettið milli Helgu og Höllu í Sporthúsinu. Fíflalæti eiga samt eftir að valda þar slysi, en það er bara eins og það er.
Við komum þann 17. desember ... bara svona svo fólk hætti að spurja... ég fæ nokkrar spurningar á dag vegna þessa... en þá er það komið á hreint. Við millilendum í New York og höfum 12 klst til að eyða þar. Við ætlum að taka leigubíl á Manhattan og skoða eyjuna í jólafötunum. Það verður eflaust MUN kaldara en hér á Flórida.... brrrr...

Þessi litli gæi þekkir mig ekki neitt, enda var hann bara nýskírður þegar ég sá hann seinast. Verð pottþétt í uppáhaldi þegar ég kem með öll töffarafötin sem ég er búin að kaupa á hann. Hlakka alveg endalaust til að hitta hann aftur!
Ég ætla að fara að horfa á ELF. BæBæ.
Ps. Alltaf þegar ég keyri í Walmart þá minnir þessi gæji mig á mikilvægi þess að mennta mig... ég fer alltaf beint heim að læra.
HaHaHaHa
♥~*Ãg*~♥
Margrét heiti ég og er fædd 2.aprÃl 1983. Stúdent frá FG. Ãg bý à Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mÃnum og stunda hér nám à innanhússarkÃtekt:)
♥~*Gestabókin*~♥
♥~*Myndir*~♥
Skoða myndir!♥~*Hafðu samband*~♥
♥~*Vinir og vandamenn*~♥