nóvember 01, 2007

Seinustu helgi skelltum við okkur ásamt *vinapari* okkar yfir til Georgiu. Við lögðum af stað seint og keyrðum í myrkrinu í rúmlega 6 tíma. Áfangastaðurinn var stórborgin Atlanta.
Við fórum nú strax að sofa þegar við komum uppá hótel, enda langur akstur (sem Fannar greyið á allan heiður af).
Daginn eftir fórum við í rússíbanagarðinn "Six Flags", þar sem ég kynntist *hinni hliðinni* á Karólínu.
Hún var voða kúl og hlakkaði svo til í að fara í garðinn, en í hverri rússíbanaferð öskraði hún hástöfum, blótaði og hélt höndunum fyrir andlitið á sér! Svo þegar ferðin var búin þá var komið bros á vör og allt voða gaman.
Við grínuðust með að hún fengi Tourette um "borð" í tækjunum, sem henni fannst ekki alveg jafn fyndið og okkur.
Justin kærasti hennar sýndi einnig á sér aðra mynd. Gaurinn mætti með háls-púða, eyrnatappa og sótthreinsandi fyrir hendurnar á sér sem hann notaði óspart þegar hann fékk sér að borða.... já og talandi um að borða... gæinn hafði SMURT hvorki meira né minna en 17!!! samlokur!!! Sem hann mætti með í kæliboxi takk fyrir.
Við Fannar ætluðum bara að láta skyndibitafæði duga yfir helgina... en jæja...
Það var æðislega gaman í garðinum, þótt hann sé engan vegin eins og Universal og Busch Gardens.
Sunnudagurinn byrjaði með ferð í "Atlanta Sea Aquarium", sem er stærsta fiskabúr í heimi. Þar sáum við bókstaflega allt sem syndir í sjó. Við gengum undir fiskabúrið sem kom í brú yfir okkur, og þarna voru hákarlar syndandi og allskonar sjávardýr. Rosalega flott.
Eftir það röltuðum við í miðbæ Atlanta og hittum Milad. Milad er Írani sem var með okkur í skóla en skipti og flutti til Atlanta. Meðan við löbbuðum upp eina götuna sáum við sama bílinn keyra nokkrusinnum framhjá okkur. Þegar við athuguðum betur hvað væri að þessu liði, þá sáum við að það var verið að taka upp kvikmynd. Leikarar héngu aftaná bílnum með cameru í andlitinu.
Þar sem allt er risastórt í Atlanta, og mun kaldara en á Flórida þá fékk maður smá *NY* fiðring í magann. Við gengum framhjá neðanjarðarMOLLI með yfir 70 búðum í og það þurfti bókstaflega að draga mig í burtu! Ég á eftir að fara þangað aftur til að skoða borgina betur, það er bókað mál:)
Eftir akkurat 9 daga keyri ég niðureftir endilangri Flórida (segir maður ekki svoleiðs?) og hitti hana Höllu sköllu og co. Það verður eflaust mikið gaman og mikið fjör eins og Laddi segir. Stelpan ætlar að draga mig á City Walk í Universals Studio sem er bara pöbbarölt í Univ.garðinum. Það er endalaust gaman!
Jahérna já... það er annars lítið að frétta... Halloween er í dag og krakkar útum allt að sníkja. Prófessorarnir mínir mættu í búningum í skólann. Grasker gekk á milli með nammi í sem við máttum fá okkur úr. Svo skítið hvað þetta er stór hátíð hérna.
Thanksgiving skreytingar eru líka komnar útum allt og JÓLASKREYTINGAR!!! Hvað er málið?? Má ekki láta eina hátíð njóta sín í staðin fyrir að klessa þessu öllu saman? Fólk verður bara ruglað á þessu svei mér þá.
*** 6 vikur í heimkomu:) ***
Nýjar myndir í albúmi!



posted @ 11/01/2007 01:53:00 f.h.