nóvember 13, 2007
Ein stelpa lagði af stað í leiðangur….
Ég keyrði alein (já finnst það merkilegt þar sem ég er “in a constant state of being lost”) Ég er örugglega sú áttaviltasta í heimi. En með þökk Garmin þá komst ég á leiðarenda.
Það var alveg meiriháttar fjör hjá okkur, enda ekki annars að vænta.
-Drukkum ófáar frosnar margarítur… mmmmmm!
-Fórum í minigolf í einhverjum krókodílagarði innan um svanga krókodíla, Halla hvað vorum við að spá??
-Hver morgun nýttur í sólbað.
-Fórum út að borða á Planet Hollywood við Disney, ég laug því að Halla ætti afmæli og hún fékk kveðju á alla skjái á staðnum og ís. Hugsuðum reyndar ekki það langt að við gætum hugsanlega verið beðnar um skilríki útaf áfenginu sem við pöntuðum… en það var seinnitímavandamál! Grenjuðum úr okkur augun þarna eins og smástelpur. HaHaHaHa
-Mættum L.A Lakers liðinu á leiðinni í Downtown Disney… fundum 70’diskótek en stór kalla-konu dyravörður stoppaði það fun…
-Djömmuðum í Universal Studio City Walk.
-Hittum Michael Jordan… vorum alveg 99% vissar … held mig við það…
-Sáum ALLA Orlando (sökum áttavilltu minnar).
-Versluðum… versluðum… versluðum…
-Fórum aftur á Friday’s sportbarinn , horfðum á rugby-leik og eignuðumst þar vini sem vinna í dýragarði. Höfðum af þeim drykki… stungum af.
Held þetta lýsi ferðinni… hún var allavegana svona fyrir mér, hlakka til að endurtaka svona stelpuferð:)
Halla: anytime!;)
Ruttan mín og Kalli kúla eru nú að fljúga til Orlando innan skamms. Þá verður mikið gaman og mikið fjör. Fannar fer til Palm Beach og verður hjá pabba sínum og fjölskyldu yfir Thanksgiving, meðan mér, óðu verslunarkonunni verður hent til út í Orlando.
Skólinn gengur bara vel. Er í prófum eins og alltaf. Það eru próf jafnt og þétt yfir alla önnina sem gilda mikið, og lokaprófin aftur á móti eru bara um 20-30% sem er mjög þægilegt. Ég þarf að setja í 5 gír og læra alla daga til að leyfa mér þessar Orlando ferðir, en það er alveg þess virði!
Anyhow, ég er farin að stúdera listasögu.
♥~*Ãg*~♥
Margrét heiti ég og er fædd 2.aprÃl 1983. Stúdent frá FG. Ãg bý à Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mÃnum og stunda hér nám à innanhússarkÃtekt:)
♥~*Gestabókin*~♥
♥~*Myndir*~♥
Skoða myndir!♥~*Hafðu samband*~♥
♥~*Vinir og vandamenn*~♥