myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

október 10, 2007








Við lögðum af stað til Orlando á föstudaginn eftir skóla. Okkur langaði á Halloween Horror Night í Universal Studios, en þar sem spáin var ekkert alltof góð þá ætluðum við bara að sjá til. Jafnvel gera eitthvað allt annað.
En á leiðinni þangað hringdi Gummi og sagði okkur að hann ætlaði að koma og hitta okkur í Orlando daginn eftir ásamt pabba þeirra og litlu systkinum:)
Fyrsta kvöldið kítum við Fannar á einhvern risastóran Friday's, og eftir matinn þá fórum við á barinn og sátum þar og
spiluðum póker í tölvu á barnum.
Daginn eftir FÉKK ég aðeins að kíkja í Milenia Mall (OF gaman!) meðan við biðum eftir hinum. Þegar þau komu, þá tékkuðum við okkur inná hótelherbergið sem Eyjó tók fyrir okkur og fengum okkur bjór.
Eftir það bauð hann okkur út að borða, og síðan lá leiðin í Univesal Studios. Veðrið var æðislegt, engar þrumur og eldingar eins og spáð var:)
Garðurinn var fullur af verum sem eltu mann, sem var frekar scary í reyknum sem var í öllum krókum og kimum. Þar vorum við alveg til 2 um nóttina, eftir að hafa farið í ógeðsleg draugahús. Ég fór í gegnum
húsið hans Freddy Krugers þar sem maður labbaði meðfram veggjum og allt í blóði, "fórnarlömb" hans öskrandi á mann alblóðug að forða sér, og svo loksins hann sjálfur poppandi upp beint í andlitinu á manni og ég sver það ég öskraði eins og smábarn! Einnig manaði ég mig upp í að fara í nokkur önnur hús, en svo var ég bara með Alexöndru í hinum "venjulegu" tækjunum á meðan þar sem hún var sjálf hrædd við þessa kalla.
Á sunnudeginum fórum við í morgunmat á Denny's og svo heim.

Kosturinn við að vera komin "heim" í Tallahassee er að það er ekki eins heitt og í Orlando. Úff... Mig hlakkar bara til að koma heim í snjóinn og slydduna á Íslandi:)

Skólinn gengur mjög vel, bú
in að fá frábærar einkannir hingað til. Ég klára TCC um jólin, svo ég fór um daginn og talaði við deildarstjórann í FSU-interior design programinu og hann sagði mér að ég þarf að fara í gegnum árlegt "mat" hjá þeim. Ég þarf að taka 4 fög, og svo velja þeir úr bestu nemendurnar.
Þeir taka aðeins 40 nemendur allt í allt á hverju ári! Tek það fram að FSU hefur alls 80.000 nemend
ur (í öllum deildum)!
Hann sagði mér einnig að tveir af þessum áföngum eru bara kenndir á sumrin, en bauð mér að taka tvo eftir áramót og tvo um sumarið. Bæði til að hafa lengri tíma til að vinna við þessi verkefni, og líka svo ég þurfi ekki að bíða þar til í sumar til að byrja.
EF ég kemst inn, þá mun ég vera bundin í skólanum í 6 annir í röð. Tvö ár straight! Sumarannir eru skylda... æðislegt! :(


En það kemur í ljós hvað við gerum eftir jól, hvort ég tek hálft nám og verð hér, eða komi heim og fari út aftur í sumar.
*Langar Heim*

En það kemur bara allt í ljós... of mikill höfuðverkur.

NÝJAR MYNDIR: Busch Garden, Viktor í heimsókn og Halloween Horror Night í Universal St.


-bless-




posted @ 10/10/2007 02:05:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu