myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

október 19, 2007




Þar sem Ísland er lítið land, og fólk yfirleitt viti ekkert um það (tala nú ekki um þegar þau hafa ekki grænan HVAR það er), þá hefur mér liðið svolítið eins og við værum í sviðsljósinu seinustu daga.
Það byrjaði nú þannig að ég var stödd inn í mátunarklefa í uppáhalds versluninni minni, Forever 21, þegar Björk "okkar" stelur senuni og ómar um alla búðina.
Nú morguninn eftir er ég að labba úr tíma í annan, þegar ég heyri tvær stelpur fyrir framan mig telja upp lönd sem þær ætla að heimsækja aður en þær... já. Mest var talað um Íslandið okkar, og hvað það væri fallegt og öðruvísi. Greinilega mikið í tísku meðal kanans.
Ég skellti mér svo í litun í gær, þar sem stelpan sem litaði mig spurði mig hvort "Vilhjalmsdottir" (já, bar það rétt fram), væri íslenskt.
Þá hafði hún hitt íslenska stelpu sem býr í Orlando og þekkti söguna bakvið eftirnöfnin okkar.
Humanity kennarinn minn kom svo til mín um daginn og bað mig að halda smá kynningu á landinu okkar. Þar sem þetta er listaáfangi, þá fannst henni tilvalið að biðja mig að sýna hvernig íslensk náttúra hefur stóran þátt í mörgun listaverkum, sögum og fleiru. Ég fæ að sjálfsögðu auka "kredit", eða stig (allt metið í stigum, en ekki prósentum eins og heima).

Þessi óbilandi áhugi á landi okkar og þjóð er að stóraukast. Hvort það sé slæmt eða gott er svo annað mál.

En yfir í annað.
Chemistry kennarinn minn er fyndinn.
Hann er það fyndinn að ég labba oftar en ekki út úr tímum með maskara niður á kinnar.

En í fyrradag gerði hann endanlega útaf við mig. Maðurinn mætti gallvaskur í kennslustund og ætlaði að sýna okkur dæmi um "reactions".
Þá tók hann upp þessi huges GRÆNU KAFARA GLERAUGU og setti á sig, og byrjaði að blanda eitthvað sull sem lak út um all skrifborðið hans:)
Hann er samt svona maður sem veit allt. Hann gerir sér alveg grein fyrir þvi að hann er að kenna nemendum sem nenna ekki að læra efnafræði en þurfa þess. Svo hann setur allt upp svo fyndið til að við munum.
Þegar hann var að kenna okkur í fyrsta tíma um tilraun, athugun og allt það, þá sagði hann okkur dæmi um ef við stingum litlu systur okkar með blýanti og hún meiðir sig, þá heppnaðist tilraunin. Ef við prufum aftur, til að testa tilraunina, og hún meiðir sig ekki, þá gæti verið að eitthvað fór úrskeiðis. Td. að við snérum blíantinum öfugt!!!
hahahahaha
He kills me one day...

Annars er farið að kólna örlítið hérna í ameríkunni. Sólin farin i helgarfrí, og ég labbaði í morgun í skólann í helli dembu með risa regnhlíf. Svoldið skrítið að vera í stuttbuxum og hlýrabol með regnhlíf... en ég og bækurnar mínar lifðum það af.

Eg ákvað að skella inn myndum af Tallahassee (stal þeim bara af netinu):

The image “http://www.redevelopment.net/files/TallahasseeAdams.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
A. B. Maclay State Gardens
http://images.jupiterimages.com/common/detail/35/74/23057435.jpg
http://www.crtpa.org/html2/Fotos/FSU%202.JPG
Sú seinasta er frá skólalóð FSU (bókasafnið). Þetta verður mín "bókhlaða" ef ég kemst inn:)
Ekki svo slæmt:)

-Ekki meir í bili-


posted @ 10/19/2007 06:55:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu