september 20, 2007
Ég var að koma úr humanitie prófi og það er eitthvað ekki alveg eins og það á að vera......
Mér finnst þetta STÓRSKEMMTILEGUR áfangi og mér gekk ótrúega vel á prófinu. Verst er að mig hlakkar til næsta tíma og sjá fallega A-ið mitt, og eins til að fræðast meira um efnið.
There... I said it!
Ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig. Að MÉR skuli finnast listasaga svona skemmtileg? Á dauða mínum átti ég frekar von á.
Við erum að læra um tímabilin upp að Baroque, ss. Rainassance, Mannerism og Catholic Reformation. Þarna koma fyrir kallar eins og Michelangelo, Bernini, DaVinci og fl. Við eigum að þekkja hvað var að gerast í heiminum í gegnum málverkin. Við erum svo rétt byrjuð í arkítektinni. Það er magnað að fræðast um Louvre og Versali, hvernig þetta var byggt og hver var pælingin bakvið. Mig langar svo að ferðast um Evrópu og skoða öll þessi gömlu listaverk.
Ég held ég þurfi að leggjast niður og jafna mig á þessari uppgvötun minni.
-Bæ í bili-
posted @ 9/20/2007 05:12:00 f.h.