myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

september 30, 2007




Ég sit hér ein á laugardagskvöldi og er að lesa. Fannar fór á "play-date" eins og ég kýs að kalla það. Hann fór með Mark og Greg að spila Halo3. Ég tek lesturinn yfir það.
Ég fór með Karolínu, Farnaz og 8 öðrum á Shisha, eða Alladin í gær. Ég hef ekki enn áttað mig á tilganginum þar. Staðurinn er allur skreyttur í Indlands-þema; teppi á veggjum, lágir bekkir, púðar útum allt, þjónustufólkið klætt í indversk föt og fleira framandi. Við sátum í hring, flestir voru reykjandi jurtaté úr risastórum skreyttum pípum sem standa á gólfinu. Við Karolína fengum okkur bara súkkulaðisjeik með tilheyrandi sjokki þjónsins.
Fólkið fyrir aftan okkur hló og hló svo ég fór að efast um hvort þetta væri í raun aðeins jurtaté, sullið í pípunum.
Ég ákvað að stinga af með Randy og Donatta á einhvern "upper class club", en þar voru Fannar, Mark og fleiri. Þar fengum við okkur ófáa kokteilana og spjölluðum um hitt og þetta.
Eftir það var farið og fengið sér að borða.

Ég og Donatta

Í dag er ég svo bara búin að vera að læra. Próf á mánudag og ritgerðarskil á miðvikudaginn. Annars finnst mér ég varla búin að gera nein óskup þessa önn, það er svo stutt síðan við komum hingað, en samt er hún næstum hálfnuð!
Til að bæta úr því þá ætlum við að skella okkur til Orlando á Halloween Horrornigh í Universal Studio næstu helgi. Karolína og Justin kærasti hennar koma sennilega með okkur. Þetta á víst að vera ógeðslegt alveg, Mike Myers, Leather-face og þessir kallar verða þarna labbandi á milli og hræða líftóruna úr fólki ásamt fleiri uppákomum. Svo styttist í að Ruttan og Kalli koma, en það verður yfir Thanksgiving og við Fannar erum í 4 daga fríi. Verðum í Orlando með þeim í einhverja daga og ef ég þekki okkur stelpurnar rétt þá verða verslunarferðirnar ekki sparaðar.

Annars er allt gott að frétta af okkur. Mig langar mest til að sjá Dag Hrafn, sem er búiinn að stækka eins og ég veit ekki hvað. Farinn að snúa sér yfir á bakið og lyftir höfði. Ég hef bara séð hann í web-cam og finnst hann hafa stækkað svo fljótt! Hlakka endalaust mikið til að sjá hann um jólin, en þá verður hann orðin 5 mánaða! Rakel er með barnaland síðu sem hægt er að fylgjast með honum: Dagurhrafn.Barnaland.is Hann er sætasta barn í heimi og mesti töffari sem ég þekki;)


(Vonandi er í lagi Rakel að ég fékk þessar myndir "í láni"?)


posted @ 9/30/2007 05:10:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu