myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

september 12, 2007



Þá eru 3 vikur síðan við komum. Það er ágætis hreyfing sosum. Núna eru "bara" 3 mánuðir eftir.

Jæja, þá er Viktor farinn frá okkur. Fannar skutlaði honum til Orando í dag. Flugið fór kl. 19 á okkar tíma, svo Fannar greyið er enn að keyra heim (4-5 klst hvor leið).
Það er búið að vera svaka gaman að hafa hann hér. Eyjó, Viktor og Alexandra komu til okkar þarseinasta föstudag. Við kítum í minigolf og svona á laugardaginn, en á sunnudaginn keyrðum við niður til Tampa og vorum samferða Eyjó og Alex áleiðis.
Við gistum á fínu hóteli, með innisundlaug (eða meira svona strönd inni!), veitingahúsum og börum. Okkur langaði að kíkja á hótelbarinn þegar við höfðum hent frá okkur dótinu. Löbbum inn (bjuggumst við að heyra dúndrandi tónlist og stuð) en nei, við löbbuðum beint inná leikritið sem Chandler fór óvart einn á "why don't you like me" !!! .... eða svona næstum...
Uppi á sviði stóð strákaleg stelpa og fór með einhverjar línur...

-við vorum mætt á "poetry-night" -

Fengum okkur sæti aftast og ég rétt náði að halda hláturstárunum inni þegar við gátum ekki meir og fórum.

Næsta dag fórum við í Busch Garden. Það var ÆÐI. Þrátt fyrir að vera Labor Day, þá var óvenju lítið að gera. Við náðum að fara í öll stærstu tækin (nokkrusinnum í hvort) og gert aveg heilmikið.
Það var reyndar ekki jafn spennandi að keyra alla leið heim aftur...

Póker hefur verið afar vinsæll síðustu daga. Ég vann $100 ... en mátti ekki segja frá til þess að passa karlmanns-stoltið því það hitnaði heldur betur í kolunum... en þið heyrðuð það ekki frá mér!

Eins kíktum við á skemmtistað sem er víst rétt hjá okkur. Hann er risa stór og á 3 hæðum. Ekki slæmt það...


Skólinn er byrjaður af alvöru. Ég sótti um útskrift um daginn, og nú þarf ég bara að fá viðtal hjá deildarstjóranum í FSU. Þeir taka aðeins 40 nemendur!
Baka fyrir hann möffins eða eitthvað...


posted @ 9/12/2007 11:46:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu