ágúst 29, 2007
Ohh ég vildi að sumarið væri bara hálfnað, var svooo gaman:)Hápunkturinn var auðvitað að fá þennann gutta í heiminn, enda er þessi frænka hér að springa úr stolti!!!;)
Ég á alveg svolítið í honum líka...Svo var alltaf eitthvað skemmtó í gangi. Ég er fegin því að ég var ekki uppá hóteli á næturvöktum, þá hefði ég ekki hitt neinn að viti.Mikið djammað ...
Við áttum 2.ára afmæli...
Fór í ferðalög...
Mikið grillað á Háhæð, fékk æðislega vinnu, hitti eiginlega alla, gott veður og allt eins og það átti að vera (",)Þá er þessi önn komin á skrið.Við lentum í Jacksonville á þriðjudags kvöldið. Gummi sótti okkur, og þar sem við "gleymdum" að láta kveikja á rafmagninu með fyrirvara, þá gistum við á hóteli fyrstu nóttina.Um helgina var okkur boðið með á ströndina, en mamma Gumma, tvær vinkonur hennar og systir hans leigðu hús þar. Þar var drukkið, spilaður póker og farið út að borða. Ég gerði tilraun til að fara í sjóinn með litlu systir hans Gumma, en var of hrædd við risa krabbana :(

Skólinn byrjaði í gær, og ég er mjög sátt með kennarana mína og töfluna. Tek efnafræði, stærðfræði og tvo "humanities" (listasaga blahhh). Brá svolítið þegar ég mætti í fyrsta tímann minn. Það fyrsta sem kennarinn sagði okkur var neyðarnúmer hjá TCC camp-police!!! ... jahá! Á maður að vera hræddur eða??En Mr. Berg (eða Böööörg) var nú ábyggilega bara að hafa allt á hreinu svona... eða það vona ég.Karólína var alveg himinlifandi við að hitta mig. Við erum saman í efnafræði. Vorum nú góðar saman í líffæði í fyrra, alltaf spurjandi um einföldustu hluti. Ég kenni enskunni um!Næstu helgi koma Viktor og Eyjó pabbi strákana til okkar. Það er frí á mánudaginn vegna Labor Day (ekki grænan hvað það er en jæja) og þá ætlum við sko að keyra eitthvað á fína bílnum okkar með glænýja GPS tækið ;) ( misstum okkur aðeins í innkaupum þegar við komum).Okkur langar annaðhvort til Tampa og fara í Bush Gardens, eða keyra til Atlanda, Georgiu og fara í eitthvað risa fiskabúr og leika okkur. Kemur í ljós.-MAGGA-
posted @ 8/29/2007 08:31:00 e.h.