maí 20, 2007
Frétt af mbl.is
Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 40 ára gamalli konu, Guðríði Björgu Gunnarsdóttur. Guðríður er þéttvaxin, um 1,70 sm. á hæð með stutt dökkt hár. Ekki er vitað um klæðaburð. Þeir sem vita um ferðir Guðríðar eftir þriðjudaginn 15. maí eða vita hvar hún er, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.
1,70 SM !!!!!!!!
Ekki nema von að hún sé týnd.... svona smávaxin.
En við erum semsagt komin heim núna... reyndar alveg 2 vikur síðan. Svakalega gott að komast heim! Ég er byrjuð að vinna í EGG, er að vinna í hönnunarsetrinu þar við að hanna eldhús- og baðinnréttingar. Alveg rosalega fínt. Fannar er að
vinna í Logoflex, skiltagerð og líst einnig vel á.
Í gær skelltum við okkur í útskriftarpartý til Ástu skvís og var mikið fjör þar á bæ.
Ég var að spöglera hvort ekki væru einhverjir til í bústaðaferð sem fyrst? Who's with me??
Að lokum vil ég óska öllum þeim sem eru að klára prófin sín, eða útskrifast til hamingju með það ;=)
Bye yall!
posted @ 5/20/2007 01:43:00 e.h.