apríl 27, 2007
Þá er þessi önn búin hjá mér. Seinasta prófið var í gær og MIKILL léttir yfir því.
Annars var þetta frekar fljótt að líða, eiginlega ekkert stress þannig séð. Við Fannar fórum á ströndina í St.George Island sem er eyja í um 1 1/2 tíma frá okkur. Það var æði að liggja bara á ströndinni og læra í rólegheitunum.


Núna eru bara 5 dagar þar til við lendum á Íslandi. Ætlum að nota tíman þangað til í að pakka og þrífa og svona. En við ætlum að halda íbúðinni í sumar. Nenntum sko ekki að tæma hana. Svo ef einhver á leið til Flórida þá er yfirgefin íbúð þarna einhverstaðar norðanlega fyrir þá sem hafa áhuga:P
Á eftir fer ég í nudd, fótsnyrtinu og andlitsbað í boði míns elskulega kærasta. Heldur betur þörf á eftir allan þennan próflestur. Helgin fer svo í að versla og hana nú! Mér tókst að plata Fannar að koma með mér, en BARA því honum VANTAR föt. Það fer örugglega þannig að við förum í eina búð, hann tekur allt saman á 5 mín og fer hehehe... strákar piff....
posted @ 4/27/2007 07:59:00 f.h.