myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

apríl 17, 2007



15 dagar þar til ég lendi á Íslandinu !!!
... og tel niður:)
Ekki mikið að frétta af okkur. Bara lærdómur og meiri lærdómur. Þessi vika er síðasta kennsluvikan, og svo bara próf strax eftir helgi. Úff...
Ég átti afmæli 2. Apríl og það var hellingur að gerast þá. Fögnuðum með krökkunum í skólanum afmælisbörnum í Apríl með því að fara öll út að borða á flottann veitingastað. Vorum 3 afmælis-stelpurnar og fengum að sjálfsögðu köku og svona. Svo helgina eftir var farið á djammið. Var búið að plana fyrir mig afmælis-partý á einum skemmtistaðnum. Um miðnætti var svo komið afmæli hjá Genessu og það var surprise partý heima hjá henni, svo allir fóru þangað.
Margra daga hátíðarhöld svei mér þá.
*Ég setti inn fullt af myndum*




Heiða Karen er í Flórida núna með Valda vini sínum. Hún er bara 4 klst í burtu frá mér, en ég hef ekkert hitt hana samt. Skólinn er staðráðinn í að koma í veg fyrir að við hittumst :S
Við verðum að sjá til og vonandi get ég keyrt niður til Tampa og knúsað hana. Hef ekki séð Heiðu síðan seinasta sumar!!!

Anyways, eins of flestir vita þá var skothríð í Virginia Tech Campus. Þetta er á öllum fréttastöðvunum hérna, og verið að sýna myndbönd sem nemendur hafa tekið upp á símann sinn og sýnir árásamanninn skjóta.
Það sem skrítna er finnst mér, er það að hann skaut fyrst kl.7 um morguninn, og gat svo komið aftur tveim tímum seinna til að skjóta fleiri. Kennararnir stöðvuðu ekki kennslu þótt þau heyrðu skothríð.
Hvar var lögreglan, eftirlitið eða einhver til að hefja STRAX leit af manninum? Þau hefðu getað komið í veg fyrir seinni árasina sem var jafnframt sú banvænust.

Nóg um það.

Mig hlakkar til að koma heim!!

Sjá þetta krútt í Júlí!!!

Feitabolluna mömmu hans (alger pæja samt!):


Nýja voffann okkar:


... og bara ALLA!!!!!

(þig líka Hadda :** - hehe)

-Adios-





posted @ 4/17/2007 04:54:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu