myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 30, 2007




ÉG KEM HEIM 2.MAÍ !!!!!!!!!!!!!!!!!

Jább, okkur tókst að kaupa okkur flugmiða eftir langt og strangt leitarferli... icelandair eru bara fégráðugir svikarar og ekkert annað! Nenni ekki að fara útí það nánar...
Anyways... ég var að koma heim af djamminu. Fórum nokkur saman á Bullwinkels, og borguðum bara 5$ inn og drukkujm frítt:) Svo það var bara svaka fjör. Einn var borinn heim, en annars allt í góðum gír.



Seinustu helgi fór ég í útileigu með krökkunum í ISO. Við lögðum af stað á föstudegi og vorum til sunnudags. Það var rosalega gaman hja okkur. Stelpur gistu saman og strákar saman, smá flashback frá grunnskola:p Við fórum á kajak í góða veðrinu, sólbað, leiki, volleyball, skutum úr boga og örfum og sögðum draugasögur við varðeld sem við kveiktum í miðjum skóginum. Sumar urðu svo hræddar að öll nóttin fór í öskur og kjánalæti! hehe



Næstu helgi er svo "Spring time Tallahassee", sem er einhver dagur sem fer í allskonar uppákomur. Lindsey hringdi í mig í dag og spurði mig hvort ég vildi koma með sér að fylgjast með skrúðgöngunni og fleira, en ég varð að segja henni að ég gæti ekki farið með henni..... því ég væri Í sjálfri skrúðgöngunni!!! hahaha how lame! Við tókum það semsagt að okkur að bera íslenska fánann (eða Fannar), og ég verð fremst að halda á einhverjum borða:P Lindsey hló endalaust og sagðist ætla að mæta með myndavél og hlægja af okkur!:P

En jæja já, ég er búin að setja þrjú albúm inn, frá International Café, St.Patricsday/afmæli Marks, og Camp Cherry Lake.
Ætla að fara að lúlla mér... bæjó!


posted @ 3/30/2007 07:59:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu