myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 02, 2007






Þessi stelpa þarna kom til mín 22 febrúar. Við skunduðum strax daginn eftir niður til Miami... eða þar enduðum við allavegana eftir allskonar útúrsnúninga og stopp:P Við "urðum" auðvitað að stoppa í Orlando í malli þar, algjört möst sko! Eftir að leita af hótelinu okkar í vitlausum bæ (já ég veit!), þá fundum við loksins út að við vorum í Hollywood, en ekki Miami (vitlaust kort sko!). Okkur var vísað leiðina og við komumst á hótelið okkar... sem var FULLT! Okkur vísað á annað hótel rétt hjá, en vorum bara hæst ánægðar þegar við sáum það. Þetta var MIKLU flottara hótel, og góð þjónusta. Við sáttar.



Daginn eftir þá röltuðum við í góða veðrinu á verslunargötu rétt fyrir ofan South Beach. Allt hrikalega dýrt auðvitað, en Rakel lét það ekkert á sig fá og hreinlega tæmdi búðirnar. Ætluðum að liggja á ströndinni svo, en höfðum varla tíma svo við létum það nægja að keyra Ocean drive (strandarvegurinn á South Beach). Sáum alla þessar glæsikerrur og læti.


Eftir það þá drifum við okkur á hótelið og gera okkur reddý fyrir tónleikana. Þeir voru haldnir í American Airlines húsinu og við ætluðum barasta ekkert að fá stæði fyrst. Keyðrum í trilljón hringi og þolinmæði okkar var að á enda. Vorum þarna tvær uppstrílaðar litlar stelpur að missa af Justin í stresskasti, en þegar við fundum loksins stæði ÞÁ fannst okkur þetta ógeðslega fyndið!


Við hlupum þarna inn á risa hælum (ekki auðvelt) og fengum okkar sæti. Misstum reyndar af fyrstu tveim lögunum, en það er alltílæ. Tónleikarnir voru í einu orði sagt GEÐVEIKIR! Svakalegt ljósashow og svo kom Timberland og dj-aðist og risa gegnsær skjár allt í kringum hann. Hrikalegt fjör. Eitt sem við grátum yfir núna, er að hafa ekki tekið myndavélarnar okkar með:( Það stóð á miðanum okkar að engar myndavélar væru leyfðar, og við tókum ekki sjensinn að þær væru bara teknar af okkur, enda kaninn klikkaður. Svo þegar við mættum þarna, þá var hver einasta sála með vél!! SMÁ svekktar!




Svo hef ég bara verið í skólanum þessa viku, en við Rakel erum búnar að þræða mollin alveg og kíktum á djammið í gær með Gumma og Lindsey. En núna er ég komin í Spring Brake, og við ætlum að fara eitthvert skemmtó.






Bið að heilsa, bæbæ


posted @ 3/02/2007 05:14:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu