febrúar 22, 2007
*Myndir fra helginni komnar*

Loksin komin með BÍL :D
... about time!!!!!
Nú er ég bara að bííííða eftir Rakel skömminni, hún á að lenda eftir nokkra klukkutíma stelpuskjátan og mig hlakkar svo til! Förum strax í fyrramáli eftir tíma hjá mér, til Miami. Justin vinur okkar bíður spenntur eftir að hitta okkur á laugardaginn;)
Vonum bara að við komum heilar heim, þetta er ekkert ALLTOF örugg borg. En núna veit ég alveg hvar aðal svæðið er á South Beach, allar glæsikerrurnar, celebin og fíneríið;) Við þangað!!
Um daginn var verið að heiðra Hilmar og Kristínu .... veit enginn hvað ég er að tala um HEHE
En þau semsagt eru íslensk hjón sem búa hér og gáfu okkur Fannari skólastyrk :D Þau hafa gert mikið af góðverkum og hjálpað hér í bænum, svo það var verið að vígja múrstein með nafninu þeirra grafið í hér fyrir utan skólann. Við áttum að vera viðstödd og svo var tekið mynd af okkur fjórum og birt í Democrat (dagblað). Ég er orðin alveg ofsalega fræg hér, því þetta er þriðja skiptið sem það kemur mynd af mérí þessu blessaða blaði. Spá í að fara að ganga með eiginhandaráritunar-hefti og penna!
Úr ruglinu og yfir í .......vitleysuna=stærðfræðina....
-BÆ-
posted @ 2/22/2007 10:15:00 e.h.