febrúar 16, 2007
Jæja þá er Valentínusardagurinn kominn og farinn. Ég var svo heppin að vera í kvöld-tíma milli 19 og 21:45, en þegar ég kom heim þá beið mín allskonar óvænt:)

Á morgun ætlum við að keyra endilanga Flórída (segir maður ekki svona?) og munum enda í Palm Beach hjá fjölskyldu Fannars. Afi hans og Amma eru líka í heimsókn hjá Eyjó (pabba Fannars) svo það verður bara lítið ættarmót:P Við förum svo á Miami South Beach a laugardaginn að skoða bíl sem við erum að spá í að kaupa. Ef allt gengur upp þá keyrum við heim á okkar eigin bíl :D Mikið hlakkar mig til!

Annars ætla ég bara að hafa þetta stutt og laggott, setti inn nokkur myndaalbúm. M.A frá ráðstefnunni seinustu helgi sem var BTW GEGGJUÐ! Hittum endalaust af liði og höldum sambandið við marga. Það er td. reunion í Orlando í byrjun mars og farið verður á djammið og Disney World og fl.
-bæbæ-
posted @ 2/16/2007 04:25:00 f.h.