janúar 16, 2007


Hafi þið einhverntíman spáð í því hvernig væri að liggja á South Beach Miami í glampandi sól og blíðu með kokteil í einni og sólarvörn í hinni??
Nei? ... ekki ég heldur.
En ég mun heldur betur upplifa það í næsta mánuði þegar Rakel Arna skvís kemur að heimsækja mig :D Jább við ætlum að taka eitt stykki road-trip niður til Miami og síðast en ekki síst, fara á Justin Timberlake tónleika þar! Já þið heyrðuð rétt, og nei ég er ekkert geðveikt fan, en hann er víst geðveikur á tónleikum! Hlakka SVOOO til :D

En þetta er bara eitt af því sem er komið á “to do” listann okkar, því við förum einnig á Spring Brake, en eigum reyndar eftir að ákveða HVERT við förum. Í Cancun voru þessar að kynna í fyrra, og verða aftur í ár... myndin er síðan í fyrra....
Jimmi Fallon var einnig á hátíðinni... Halla þú kemur bara næst;)
En yfir í annað. Skólinn er byrjaður á fullu og allt komið í sinn vanagang. Fórum um helgina til Gumma og Linseyar að spila póker ásamt David vin Gumma. LOKSINS kann ég að reglurnar svo við stelpurnar getum haldið áfram með pókerkvöldin okkar sem við störtuðum í denn.... ef einhver nennir í sumar :P
Annars vorum við að skoða flugmiða heim í sumar, og stykkið er á næstum 3000 dollara! Svo ef þetta fer ekkert minnkandi þá verðum við hér í sumarskóla, en kæmum þá heim í endann júlí og tækjum seint "sumarfrí" og jólafrí saman. En það kemur bara allt í ljós.
Svo var ég að eignast aðra vinkonu:P Hún heitir Carolina og er pólsk. Eftir fyrsta timann í líffræði þá situr hún fyrir mér og greip mig glóðvolga fyrir utan dyrnar á stofunni og fer að spjalla við mig og sagði mér að við værum líka saman í stærðfræði. Ég bara "jahá" :P
Ekki nóg með það, þá biður hún um símanúmerið mitt líka!! Ég var farin að skima eftir útgönguleiðum, byggingum í kring sem ég gæti hlaupið bakvið og falið mig fyrir henni...
En eftir að ég neyddist til að tala við hana í korter þá komst ég að því að þetta er bara mjög fin stelpa og við eigum örugglega eftir að ná ágætlega saman... ja aldrei að dæma fólk of fljótt:P
Jæja, ég er farin að lúlla... bæbæ
posted @ 1/16/2007 06:32:00 f.h.