desember 10, 2006

6 DAGAR Í HEIMKOMU!! :):)
Já það er aldeilis að styttast í Íslandsför. Okkur er farið að hlakka alveg rosalega mikið til að hitta alla:) Við leggjum reyndar af stað eftir 5 daga, eða næsta föstudag á okkar tíma.... langt ferðalag framundan:P
Prófin eru að "byrja" á þriðjudaginn og alveg þar til við förum heim. Erum samt búin i enskuprófinu og ég fékk B:) Rosa sátt með það þar sem ég náði ekki toefl.. daddaraaaa
En ég hef allavegana sannað að það var rétt hjá þeim að taka mig inn þótt mig vantaði lágmarkskröfur híhí
Það er orðið það kalt hér á Flórida að maður situr inni í LOPAPEYSU í LOPASOKKUM með hitarann í gangi takk fyrir!!! Afhverju varaði enginn mig við?? Ég mætti hingað bara með sumarföt og sólgleraugun góðu. Þarf að tína saman hlý föt þegar ég kem heim og taka með.
Í gær bauð Betty, instrutorinn okkar, okkur í jóla-hitting heim til sín. Allir komu með einhverjar veitingar með sér og svo jólapakka. Við vorum um ca. 35 þarna og höfðum voða gaman:) Ég fékk svona stóra kúlu með snjó inní.... æ þið vitið hvað ég meina, rosa sætt:) Fannar fékk "The Mask" myndina. Svo eftir það, fórum við í eftirpartý þar sem drukkið var og dansað. Mest var af Asíubúum, og mér vægast sagt BRÁ að sjá þau drekka þarna og BREIKA eins og vitleysingar! Ég er svo vön að sjá Asíubúana uppá Grand bara sem eru svo hógvær og kurteis og fara að sofa kl.8 ....
En gaman að þessu....
Ég setti inn myndirnar frá gærkvöldi, eru samt mjög fáar....
Bæjó
posted @ 12/10/2006 11:20:00 f.h.