nóvember 10, 2006

Um daginn fór ég með ISO til Florida State Park og löbbuðum í gegnum Mariana Caverns. Þetta eru eldgamlir hellar og inní þeim er alltaf sama hitastig. Áferðin á öllu inni er eins og að koma við svona frosting á kökum, eða bara blautann sykur! Mjög skritið... Ég varð nú samt svoldið hrædd þarna stundum þegar við fórum í þrönga stíga, hugsaði allan tíman um myndina "The Desent" og fékk hroll bara, hélt í hettuna á Syedu allan tímann hehe En þetta var alveg rosalega gaman að sjá og guidinn okkar sagði okkur skemmtilegar sögur af hlutum sem komið hefðu fyrir þarna, einnig að fólk GIFTIR sig ofan í hellinum! Það er steinn mótaður eins og altari og mjög flott... en það er mjög þrönt og mikill raki þarna ofaní! En yfir í annað, ég fæ flóðið af e-mailum frá feministafélaginu, lottó-einhverju og hinu og þessu í hverri viku.... ... nú ástæðan fyrir þessu öllusaman er sú að fyrr í haust þá tóku tveir ungir strákar sig saman, sem ég vann eitt sinn með uppá Grand hóteli, nefni engin nöfn, og skráðu mig í ALLA mögulegu póstlista sem þeir fundu!! *(hint: Haukur og Þór Steinar!)* Ég fæ boð um fundi í hverri viku rétt eins og ég sé meðlimur.... ........FEMINISTAFÉLAGIÐ takk fyrir !!! hahaha nei takk félagi....Vissu þið að Ísland er "least corrupt contry in the world" ? ... við Fannar lærðum um það í Political science..... kennarinn sagði að þetta kemur frá löndunum sjálfum, og greinilegt að Íslendingar séu ekkert að gefa neitt upp, þótt að allir hér úti vita um baugsmálið góða... Æ ég hef EKKERT að segja frá... reyni betur næst!
Myndirnar frá Mariana Caverns eru komnar inn...
*Ciao*
posted @ 11/10/2006 07:04:00 e.h.