myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

nóvember 24, 2006



Mánuður til jóla!!

Við erum svoleiðis búin að vera að drukkna úr verkefnaskilum, ritgerðum og prófum seinustu daga og verðum það eitthvað áfram þar til lokaprófin byrja. Við erum þó í 4 daga helgi, því Thanksgiving var í dag og svo er “black Friday” á morgun. Mike og Fannar elduðu lambalæri í Thanksgiving mat, og svo gerði Mike pumkin pie og cherry pie í eftirrétt. Þeir eru snilldarkokkar og þetta var mjög gott hjá þeim:) Á morgun kemur svo uppáhaldið mitt: VERSLA!!:) Á black Friday er ALLT á geðveikri útsölu og búðir opna kl.6 í fyrramálið!! Mike sagði að fólk er mætt alveg mun fyrr og bíður í röðum. Ég er samt búin að kaupa flestar jólagjafir og svona svo ég ætlaði bara að kíkja og ath hvort ég finni MÉR ekki eitthvað flott. Planið er að mæta 6 og vonandi næ ég að vakna:) Ef ég þekki mig rétt þá verð ég trítilóð þarna, hleyp milli búða alveg með hjartað á fullu og skoða ALLT! Ætli ég læt Fannar ekki hafa flautu og við splittum svona eins og í Friends þegar Monica var að kaupa sér brúðarkjól hehehe

En ég skal sko segja ykkur hvað ég átti vægast sagt HRÆÐILEGAN mánudag og þriðjudag!!

Mánudagurinn byrjaði með ferð uppí Cingular (símafyrirtæki) og miklu kvarti í fólkinu þar því við erum rukkuð helmingi meira en við eigum að borga. Eftir það þá fer ég í mollið og á leiðinni heim þá er KLESST aftaná mig!! Á bíl sem ég var með í láni í þokkabót!! Greyið Lindsey treystir mér fyrir bílnum og ég skila honum klesstum:( Ég veit að það var ekkert mér að kenna, en ég er samt með stórt samviskubit. Jæja ég kem mér heim (ein og í sjokki) og sest fyrir framan sjónvarpið með kvöldmatinn minn og á sömu sekúntu og ég sest niður þá fer RAFMAGNIÐ AF! Við erum að tala um að það var allt svart! Ég teygi mig á borðið þar sem við geymum alltaf risa kveikjara, en nei, í þetta eina skipti þá var hann ekki á sínum stað. Úti heyrði ég í nágrönnunum tala um að þetta væri um alla borgina. Ég sat svo bara ein í myrkrinu og reyndi að hitta matnum upp í mig.

Næsti dagur kom með mikilli tilhlökkun, bæði því dagurinn á undan væri liðinn, og líka því ég ætlaði í litun og klippingu. Ég fer og segist vilja ljósar og dökkar strípur og konan bendir mér að koma í stólinn. Skellir á mig HETTU og ég bara NEI!! Ég sagði henni að ég vildi fá álstrípur en hún bara” honey, trust me, I’ve been doing this for 7 years”. Ég var hundfúl og ákvað að sjá hvað kellar ætlaði að gera. Byrjar kerlingartuðran ekki að plokka með MIKLUM látum lokkana í gegnum hettuna og greiða svo með einhverjum stálbursta. Hún byrjaði að greiða EFST og þrýsti þar af leiðandi flækjunni á undan sér þar til hún festist gjörsamlega. Ég ýtti mér frá kellingunni, tók burstann af henni og greiddi mér sjálf! Svo spyr ég hana hvort hún sé alveg að skilja mig, að ég vildi “highlights with two colors”. Hún sagði að þetta væri eina leiðin til að gera það og þá byrjaði fjörið. Óþolinmóð benti henni á stelpu sem sat fyrir aftan mig sem var með álpappír í hausnum en hún sagði að það væri bara fyrir heillitun!! Ég var ekkert smá pirruð og sagði að hún ætti að kunna að gera tvo liti til skiptis í álpappírnum. Þá REIF hún hettuna af mér, fór bakvið og sagðist bara ætla að gera það þá (án þess að kunna það sko) og ég þyrfti bara að taka afleiðingunum því hún sagðist vera viss um að þetta væri ekki hægt!! Mín var orðin SVOLDIÐ pirruð þarna, ýtti henni frá mér og sagðist ætla að fara í mollið þar sem konurnar KYNNU að lita hár! Þá fer hún bara að tuða um að ég viti ekkert hvað ég vilji og bla bla bla.... Fannar var akkurat kominn inn og ég labbaði út með tárin í augunum, með þessa þvílíku verki í hárrótinni eftir meðferðina.
Ég fór í mollið og fékk þessa æðislegu þjónustu þar, meðan Fannar var svo reiður að hann fór til baka og talaði við yfirmanninn og gerði þau skíthrædd. Þau hafa sennilega haldið að við ætluðum að kæra eins og týpískir kanar myndu gera.
En viljiði spá samt í þessu!! Fólkið hérna er svo misjafnt að það er alveg ótrúlegt!!

Núna eru bara 22 dagar þar til ég kem heim og ég get varla beðið:) Familían mín, mínus Einar, eru í Köben núna eitthvað að spóka sig. Ég hefði alveg verið til í að fara með.
Stelpur ef þið heyrið af Sálarballi þá endilega látið mig vita! Eða bara einhverjum atburðum, mig langar að kíkja með ykkur á djammið sem oftast meðan ég er heima:)
Ég sakna allra bara svo mikið!
Hér eru nokkur andlit sem ég sakna ofur sárt.... :P





En að sjálfsögðu sakna ég ALLRA! (Bara fann ekki nógu asnalegar myndir:D)

Svo eru þessar ALLTOF skyldar til að hittast svona sjaldan:)


Síðast en ekki síst hlakkar mig til að sjá Óskar, litla kútinn hennar Önnu!:) Gat ekki sett mynd af honum inná (veit ekki afhverju) en hann er ponsu-lítil dúlla og algert rassgatíbala!:)

Ég ætla að fara að "leggja mig" svo ég vakni örugglega til að hefja verslunarbrjálæðið eldsnemma í fyrramálið.
*Take care*

PS. Þessir tveir eiga hug minn allan (fyrir utan Fannar auðvitað). Ég sakna þeirra MEST og tel niður dagana þar til ég hitti þá á ný!!! (er þetta nóg strákar??)




posted @ 11/24/2006 04:34:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu