nóvember 01, 2006
Loksins eitthvað lífsmark hér...
Nú eru miðannarprófin búin og okkur gekk bara mjög vel. Erum búin að fá úr “Reading” og “Math” og fengum bæði A ... vúhúú:)
Einnig fór ég og skipulagði námið mitt með námsráðgjafanum og ég á bara tvær annir eftir til viðbótar í þessum skóla! Fékk svo mikið metið úr FG að ég útskrifast með næstum helmingi fleiri einingar en ég þar... nokkuð gott sko!
Instructorinn okkar boðaði okkur á fund í gær. Hún sagði okkur að skólinn væri að velja 12 nemendur, 6 ameríska og 6 international nemendur til að bjóða á ráðstefnu sem verður í febrúar. Flórida fylki er að kosta tólf nemendur úr hverjum háskóla hérna til að sitja "Leadership Conference". Þetta er ráðstefna/námskeið sem á að einblína á leiðtogahæfileika og framsækni í starfi.
Hún bauð okkur að vera hluti af þessum hóp sem færi frá TCC og er það mikill heiður fyrir okkur :)
Anyways, við erum búin að hafa það bara mjög gott seinustu daga. Okkur, ásamt Gumma og Lindsey vorum boðið í kvöldmat heim til Hilmars og konunnar hans. Hilmar er consulate general fyrir hönd Íslands hérna í Tallahassee og hjálpaði mér mikið við að komst inni skólann. Þau hjónin eru yndisleg og buðu okkur í rosalega flottan mat og vín. Húsið þeirra er risa stórt og flott, og allt inni voða fágað. Þau hafa sko aldeilis tekið okkur að sér og það er eins og að eiga ömmu og afa hérna.
Mike átti svo 21 árs afmæli um daginn. Við fórum öll út að borða... með "öll" þá meina ég ég ásamt trilljón strákum, við fórum á steikhús og pöntuðum okkur nautalundir og karföflumús.
Ég fékk líka þennan drykk sem var algert NAMM!
(Áfengi Halla, ekki súkkulaði) híhíhíhí

Fyrir stuttu fór ég svo með Seydu og Kue, krökkum úr ISO á Alladdin, einhvert furðulegasta “kaffihús” sem ég hef séð. Við löbbuðum inn og settumst í eitt hornið þarna. Þetta var eins og að vera komin inní eitthvað musteri úr Alladdin teiknimyndinni. Bekkirnir voru aðeins 10 cm. Frá gólfi og skreyttir púðar útum allt, líka á gólfinu. Þegar þjónninn kom, þá pöntuðu þau sér pípu og....... ég bara ha???? ... hélt sko að ég væri komin í eitthvað dópistabæli bara....
En svo kemur þjónninn (klæddur í Alladdin föt) með risa stóra bleika pípu og setur hana á gólfið hjá okkur og réttir öllum sitthvorn stútinn sem hver notar fyrir sig.
Þetta hljómar ekki neitt vel... en i rauninni er þetta soðið jurtate sem maður sýgur að sér... á að vera voða heilsusamlegt. Ég viðurkenni að mér var svoldið létt, var næstum því farin að halda að nýju vinirnir væru í einhverju rugli og vitleystu bara hehe
Eftir kaffihúsið þá fórum við í pool. Þau sögðu mér að þau væru múslimar og drykkju ekki svo þar missti ég vonina um djammfélaga:)
Ég fékk að heyra margar sögur um þau, og hversu öðruvísi menning þeirra er. Ástæðan fyrir því að Syeda kom til USA fyrir ári, er að foreldrar hennar völdu bandarískann mann handa henni og þau giftust. Þau eru reyndar ný skilin, en núna má hún deita og velja sér sjálf maka. Kue var í samandi í meira en ár, en þau þurftu að halda því leyndu útaf fjölskyldum sínum.
Þau eru bæði algjör æði:)

En yfir í annað, Halloween var í kvöld og við fórum yfir til Gumma og Lindseyar. David var þar líka og krakkarnir spiluðu póker meðan ég fylgdist með. Annað slagið var bankað og fyrir utan stóðu krakkar í allskonar búningum ... “trick or treat” ... algerar dúllur:)
Það er svoldið skondið hvða þetta er stór hátíð hérna úti. Meira að segja stærðfræðikennarinn minn hefur mætt seinustu daga í fötum skreytt halloween myndum með graskera eyrnalokka. Í seinasta tíma þá kom hún meira að segja með grasker-körfu fulla af nammi og gaf okkur:)
Æ hún er æðisleg.
Hér er Lindsey skvís fyrir utan íbúðina þeirra:)

Þessi grasker eru fyrir utan íbúðina á móti okkur, krúttlegt:)
Ath: Nýjar myndir í albúmi.
Halloween-kveðja
*Maggalaggalá*
posted @ 11/01/2006 07:17:00 f.h.