How ya’ll ??
Jebb, svona heilsar stærðfræðikennarinn minn, Mrs. Dameron á hverjum morgni með sínum einstaka Alabama-hreim....
Já það er nú aldeilis ekki leiðinlegt að vera í góðu verðri ALLA daga. Hitinn fer lækkandi smám saman og mun halda sig í um 20 stiga hita myndi ég halda... þó ég sé enginn veðurfræðingur...
Ég mæli EKKI með því að heita VILHJALMSDOTTIR. Það er ekkert gaman sko. Ég þarf að segja nafnið mitt þrjátíuogsjösinnum svo að fólk skilji það (þó það nái því ALDREI, það bara gefst upp á að reyna). Allir kennararnir mínir létu mig segja upphátt eftirnafnið mitt marga daga í röð fyrstu vikurnar. Þeir gátu einfaldlega ekki lesið mig upp!! Mér hefur nokkrusinnum verið bent á að ég hafi 15 stafa eftirnafn!
WELL I KNOOOOW!!! (lesið með Monicu rödd).
Ég hef búið mér til “last-nicname”... það er WILLIAMS-DAUGHTER... Jább! Ég segist heita þetta ef einhver spyr mig núna. Fannar er líka löngu búinn að gefast upp. Eyjólfsson er ekkert sniðugt heldur. Þegar við pöntum leigubíl, pizzu eða eitthvað þá heitir hann yfirleitt “Chris” eða “Bob”.... (go BOB!)
Um seinustu helgi kíktum við í bíó að sjá myndina “Emploee of the month”. Hún var alveg ágætis afþreying myndi ég segja.
Eftir bíóið rötluðum við yfir á “Pockets” sem er svona pool staður/bar. Gummi og Lindsey biðu þar eftir okkur. Á leiðinni opnuðum við sitthvorn bjórinn og sötruðum í rólegheitunum þegar lögreglubíll kemur að okkur og spyr hvort það sé ekki allt í góðu. Við settum bara upp sólheimabrosið og kinkuðum kolli (búin að fela áfengið að sjálfsögðu; STRANGLEGA bannað að hafa opið áfengi á almannafæri hérna).

Þegar við vorum komin aðeins lengra þá sjáum við 3 löggubíla og löggurnar voru að reka 30 krakkaorma í burtu frá mollinu fyrir að vera með læti. Þá kemur þessi sama lögga til okkar og segir okkur að fara inní bíl!!! Aftur gerði ég tilraun til að fela bjórinn minn, og við settumst inní bílinn ... ekki alveg að skilja aðstæður! Þá sagði hann okkur að það væri ekkert öruggt að vera gangandi þarna um svona seint um kvöld útaf vandræðaunglingum.
Þarna sat ég afturí í LÖGREGLUBÍL með opinn BJÓR;)
Ég gerði mér grein fyrir aðstæðum og gat varla haldið hlátrinum niðri:) HíHíHíHíHí
Litli krimminn :)
Æ ég er þreytt... kveð með hópmynd af öllum útlendingunum sem fóru í ferðina til Itchetuchnee (við erum þarna einhverstaðar hægramegin fyrir miðju)... bæbæ
posted @ 10/13/2006 06:23:00 f.h.