október 03, 2006
Það hafa allir tekið eftir því hvað allt er RISA stórt í Ameríkunni. Ég bið alltaf um lítið kók, lítið hitt og lítið þetta, næ samt aldrei að klára.Við Fannar fórum í bíó í gær á myndina "School for scoundrels". Fannar skakklappaðist til að biðja um miðstærð af poppi og jiminn eini afgreiðslukonan hefði betur afhent okkur þetta í gámi. Þetta var trilljón sinnum stærra en þessi ofurvaxni bréfboki í Smárabíóum. Ekki einusinni láta mig byrja á kók "glasinu" sem fylgdi...
Áðan fórum við í Sam's Club (verslun með ALLT) að versla inn, og þar sem HALLOWEEN nálgast óðfluga þá ákváðum við að byrgja okkur upp að sælgæti til þess að hafa krakkakvikindin góð og verjast eggjaklessum. Meðflygjandi er "minnsti" pokinn sem ég fann af blönduðu sælgæti.... 
Annars er allt frábært að frétta af okkur. Við erum á fullu í ræktinni og að læra. Eg er búin að taka nokkur próf núna og hef ekki enn farið undir 7... undur og stórmerki hér á ferð :D
Ég tek á móti heillaóskum í síma 850-4591392
En já talandi um, þá erum við komin með heimasíma sem er mun ódýrara að hringja í, hann er: 850-5762309. Endilega hringiði þarna leiðindarpúkarnir ykkar...
Annað mál á dagskrá er ferðin sem við fórum í með ISO (International Student Organization). Hittumst öll fyrir framan skóla gymmið og þar var raðar í rútur. Við erum náttúrulega svo mikil VIP ég og Fannar að okkur var boðið far á einkabíl með tveim stelpum, Michelle og Kristi. Á leiðinni setti ég upp sleikju-lúkkið og reyndi að næla mér í vinkonur... það tóks mjög vel;) Michelle er reyndar í FSU (skólinn sem ég fer í eftir þennan) en Kristi er í mínum skóla. Hún er 24 ára og útlendingur eins og ég. Þegar við vorum komin til Ichetucknee Springs þá völdu allir sér eitthvað til að fljóta á. Ég var á litlum hring. Við hentumst í ánna eftir myndatökur þar sem ég var ein á einni og verð sett í skólablaðið... bara fræg sko... en já við flutum niður ánna í klukkutíma eða svo, með tilheyrandi skvettum og látum, voða vinsælt meðal töffara-svertingja hóps að hvolfa ollum... ég slapp.
Við sáum stórar, svartar skjaldbökur sitjandi á bökkunum rosa sætar. Þegar við komum uppúr segir Fannar sallarólegur, "ég vildi ekki hræða þig, en ég sá snák í vatninu". Ég hélt ég myndi gjörsamlega fríka út!!!! Vissi ekki hvort ég ætti að grenja eða öskra...
Við sáum svo skilti þar sem var verið að sýna dýralífið kringum ánna og viti menn, jú þarna voru snákar ofaní vatninu, einn harmlaus en annar "sjaldséður" (my ass) sem var virkilega hættulegur! Ég skildi ekki afhverju fólk sendir annað fólk ofaní vatn fullt af snákum!?!?
Hérna er ég með Michelle og Kristi...

Love
posted @ 10/03/2006 04:23:00 f.h.