myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

september 13, 2006



Glitter Graphic: 7f0e2d1ed749c36949af6d2d59bcf0b3.gif

Skólinn er byrjaður á fullu og slatti að gera. Mér list betur á þetta með hverjum deginum og loksins er maður að gera eitthvað af viti. Ég fékk semsagt 40 einingar metnar í skólann upp í AA-gráðuna (Associate in Arts) sem er 60 alls sem ég tek í TCC, svo ég á lítið eftir og útskrifast kannski í vor. Það verður eflaust skondið að fá kassalaga hatt og skikkju hehe... en svona er þetta.
Það er það með ekki sagt samt að ég sé bara búin... ónei, þetta er bara helmingur uppí B.A gráðu. Þá flyt ég mig yfir í FSU ( Florida State University) sem verður MIKIL tilbreyting þar sem þetta er HUGES skóli.


Við fengum heimsókn síðasta föstudag. Þórhalla, Vik
tor, Guðni, pabbi tvíbbana og litlu systkinin. A laugardeginum fórum við á amerískan fótboltaleik einmitt á leikvangi FSU. Þegar við löbbuðum um skólalóðina að leikvanginum sáum við sjoppur og allskonar hús með bræðra-og systrafélögum sem voru skreytt og partý í gangi. Semsagt svaka fjör alltaf á skólasvæðinu.

Leikurinn var æði..... vááá hvað þetta var skrítið og gaman að upplifa svona. Ég horfi ALDREI á íþróttir og veit ekki einusinni reglurnar í rugby, en þetta var bara snilld!!
Lúðrasveitarsýning frá sitthvorum skólanum í hléi, fimleikafólk, klappstírur, lukkudýr og fl...

Það voru um 80ÞÚSUND manns þarna! Stemmingin alveg ólýsanleg...

A sunnudeginum fórum við öll í eitthvað "Funland". Eiginlega bara tækjasalur/spilavíti með allskonar dóteríi. Við
Alexandra litla fórum í rússíbanahermi og svo var bara farið í tæki. Eftir það bauð Eyjó, pabbi strákana okkur út að borða.

Við Þórhalla og Guðni tókum mollið svo í gegn á mánudeginum. Guðni átti metið í eyðslu:P Strákurinn var með STÚTFULLAR hendur
nar af pokum og fær prik fyrir að vera eini strákurinn sem ég veit um sem lifir af svona verslunarferð:) *klapp klapp*

Annars eru þau að fara núna á föstudaginn til Orlando og við Fannar erum að spá í að fara með. Fannar "vann" víst eitthvað frá Disney, frítt í garðana fyrir okkur OG fría hótelgistinu í garðinum!!!!:) Ekki slæmt það;)

-Mag's-

Ps. Við létum pússa okkur saman á dögunum og læt ég fylgja hér með brúðkaupsmynd:)



posted @ 9/13/2006 08:12:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu