myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

ágúst 31, 2006



Ooo the humidity!!!

Ég er ekki að grínast, það er bara hættulega heitt úti! Gæti trúað því að það væri ALLAVEGANA 40 stiga hiti takk fyrir. Ekki bætir það úr skák að það er svo mikill raki í loftinu að á hverjum degi lít ég út eins og Monica í Friends þegar þau fóru til Barbados!! Hárið á mér fjölfaldast við þetta svei mér þá...
Ég sat áðan og nældi mér í smá lit við sundlaugarbakkann og ég verð að lýsa ánægju minni yfir þessum stað. ALLT er betra en gamla íbúðin okkar. Allt mun snytrilegra, íbúðin stærri, sundlaugin mun flottari og meira að segja fólkið í kring spjallar við mann:) Allt voða vinalegt eitthvað...

Það er líka ÆÐI að labba í glampandi sól í skólann (tekur um 5 mín mest). Allir voða léttklæddir og með sólgleraugu... svoldið spes!

Kennararnir mínir eru mjög fínir. Sérstaklega einn sem kennir mér tíma sem heitir "Personality & Social Adjustment". Hann er frá Indlandi og reytir af sér brandarana hægri og vinstri;) Kallinn er með A.A. gráðu, B.A gráðu, M.A gráðu og loks TVÆR P.H.D gráður!! Samt kann hann ekki við að titla sig "doctor", segist ekki vera ekki baun gáfaður bara orðið að leggja hart að sér í að fá þessar gráður. Hann er nú meiri sko...
En ég kann mjög vel við tímana hans og hef lært aðeins um þetta í FG svo ég ætti nú að standa mig sæmilega.
Svo er ég í öðrum tíma sem heitir "Political Science" sem mér finnst vera gjörsamlega óskiljanlegur! Þar erum við með risa stóra bók sem fjallar um stjórnmál Bandaríkjanna. Hvernig í óskupunum á ég að getað skilið það? Democratar og allt þetta... ég veit hvað það er að vera vinstrisinnaður og hægrisinnaður PUNKTUR!
Á næstunni eigum við að fylgjast með kosningu um landið og einnig skólakosningunni og gera ritgerð!! Ég þarf heldur betur að bretta upp ermarnar þar...
Aðrir tímar sem ég tek eru "Math", English" og "Reading". Veiii..


En jæja Fannar er að vinna núna og ég þarf að læra áður en við kíkjum eitthvað út í kvöld.

Kveðja,
Maggalaggalá

*Pssst... var að enda við að henda inn trilljón myndum frá Þjóðhátíð*


posted @ 8/31/2006 07:34:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu