ágúst 08, 2006



Eyjar beibí!
Þá er blessuð verslunnarmannahelgin afstaðin.
Ég, Fannar, Þórhalla og Viktor tókum Herjólf á hádegi á fimmtudeginum. Fengum káetu frá mömmu tvíbbana og sofnuðum á leiðinni. Stebbi og Ásta voru þegar komin í íbúðina... sem er btw ÓGEÐSLEG!! Subbukelling sem býr þarna ojbarasta skamm skamm...
Fólk fór svo að streyma að og við vorum eitthvað um 15 held ég í íbúðinni. Allir dagar byrjuðu á drykkjuspili sem Fannar og Stebbi kepptust við að búa til og gera sem ógeðslegast, smá Friends gláp, krot á hvort annað, fíflaskap og fleira.
Strax eftir kvöldmat tókum við bekkjabílinn niður í dal hlaðin áfengi. Þar var rífandi stemming öll kvöldin, nema kannski ekki alveg nógu gott veður á fimmtudag, það svoleiðis fauk allt um koll. Ekki góður dagur fyrir tjaldbúa. Ég hrifsaði Heiðu og Valda og bjargaði þeim úr brjálæðinu og tók þau með mér í íbúðina.
Á föstudeginum kom svo Elma og Anna Lilja vinkona hennar.
Dúðuðum okkur og héldum í dalinn. Byrjuðum á því að hlamma okkur hjá "Litla Garðabæ". Sötruðum þar og sungum. Einhverjir voru með trekt og við Stebbi og Fannar létum ljós okkar skína í bjórþambi:D
Við færðum okkur þó fljótlega yfir í brekkuna þar sem kveikt var á brennunni, sungið að sjálfsögðu og drukkið meira. Við Elma tókum kast í aparólu og létum eins og verstu lúðar:)
Laugardagurinn einkenndist af mikilli þynnku af minni hálfu. EENN þá var bara að halda áfram að drekka og skutlast niður í dal. Mikið djammerí og gaman. Fórum í VKB-tjaldið (bræðrafélag Gumma bróðir tvíbbana) og fengum geðveikt góða humarsúpu sem einhver góðhjartaður maður tók sig til og eldaði fyrir 200 manns:D mmmmmm
Strákarnir ákváðu að krota á hvern þann sem gæfist fyrst upp. Þessa nótt varð Stebbi (eins og svo oft áður) fyrir barðinu á þeim og varð gjörsamlega krotaður í gegn... æjjææjæjj
Seinasti dagurinn byrjaði á því að við fórum út að borða á Café Mariu... Átum á okkur gat og drifum okkur svo heim í drykkjuleik. Ég, Stebbi, Fannar og Heiða Karen vorum dálítið á eftir hinum að koma okkur út. Þau fóru og þá ákvað Stebbi að húkka far hjá lögguköllunum sem voru þarna rétt hjá. Meðan hann var í burtu hljóp Heiða gáfaða inní löggubílinn og fiktaði í talstöðvunum, kallaði svo reglulega á okkur Fannar að koma líka því þetta væri svo "ógisslega gaman". Svo sjáum við bara löggurnar koma að bílnum og taka Heiðu greyið fasta og henda henni afturí þennan stóra löggubíl!
Við stóðum þarna bara og störðum!
Hlupum með þunga poka af áfengi á næstu löggustöð og ætluðum sko að BORGA hana út. (svona eins og í bíómyndunum sko)
Kallinn þar vissi ekkert hvar hún Heiða litla væri niðurkomin svo við ákváðum að rölta bara í dalinn. Á leiðinni sáum við Heiðu koma hlaupandi til okkar, að reyna að halda kúlinu, híhí... kjáninn! Ég grenjaði svo mikið úr hlátri að ég hélt ég væri að deyja!
En við komumst loksins í dalinn, komum okkur fyrir í brekkunni og hlustuðum á Bubba. Ohhh það var æði. Það var rífandi stemming í brekkusöngnum! Þegar kveikt var á blysunum og "Lífið er yndislegt" sungið... ohh ég fæ bara hroll sko!:)
*VÁ HVAÐ ÞETTA VAR GAMAN!! *
Fannar og Viktor áttu afmæli um miðnættið og fengu afmæliskveðju af sviðinu:)Þórhalla og Sigrún vinkona hennar voru svona sniðugar:) Þeir voru sko hæstánægðir með það.
Eftir þetta röltuðum við aðeins þar til Heiða sá vindsæng í tjörninni. Mín hugsaði sig ekki tvisvar um heldur STEKKUR á hana takk fyrir. Þarna lá hún fljótandi í miðri tjörn eins og prinsessa og allir gláptu á hana, sumir voru farnir að taka myndir! heheheh
Við tókum svo vindsængina og renndum okkur niður brekkuna í drullunni:D
Þá tók Heiða AFTUR uppá því að baða sig í tjörninni við ENNÞÁ mikil fagnaðarlæti. Við vorum þarna, ég og Elma gjörsamlega ÆPANDI af hlátri. HAHAHAHA
Ég vil kalla þennan dag Heiðu-daginn(Y) Til hamingju Heiða(K)
Eftir það kíkum við í Togga-tjaldið, ættingjar tvíbbana.
Ég dreif mig svo heim bara með Heiðu, stelpan var á sneplunum og kominn tími á svefn.
Ég vil bara þakka æðislega fyrir mig krakkar:** Ég skemmti mér KONUNGLEGA og ætla sko hiklaust á næstu Þjóðhátíð!!
-Mag's-
posted @ 8/08/2006 06:58:00 e.h.