ágúst 29, 2006
Það er loksins að maður nenni að skrifa eitthvað...
Dagin eftir að við komum tókum við "Placement test", sem gekk bara ágætlega... *hóst*ég fékk HÆRRA en Fannar í ensku!!*hóst*. Við erum semsagt núna búin að skrá okkur i viðeigandi bekki og allt orðið klárt:) Við erum meira að segja svo dugleg að við tökum einum tíma fleiri en okkur var sagt að taka:)
Í skólanum eru um 13.000 manns (minnir mig) og er þetta bara svona ekta ameríkst. Subway og fl skyndibitastaðir í skólanum, vopnaðir lögregluþjónar útum allt inni, líkamsræktarstöð og fleira tilheyrandi.
Einnig ætlum að vera með í félagi sem heitir "ISO" (International Student Organization). Þetta eru Tcc nemendur allstaðar að úr heiminum sem hittast og gera ýmislegt saman. Td. er einhverskonar river-rafting ferð á dagskrá á næstunni og verður þá keyrt eitthvað út fyrir bæinn. Við Fannar ætlum að troða okkur með að sjálfsögðu í þeirri von um að kynnast fleirum:)
Við fengum einnig skemmtilega heimsókn daginn eftir að við komum hingað. Stebbi, Ásta, Selma systir Stebba og Pétur kærasti hennar komu til okkar og gistu í 4 nætur. Við stelpurnar versluðum og versluðum og Ásta blessunin fyllti heila ferðatösku hehe... á meðan sátu strákarnir og voru gjörsamlega að rotna úr leiðindum.
En svona er þetta bara, rule #1: ALDREI að koma með stelpum í mollið! híhí;)
Annars gerðum við margt annað skemmtilegt. Við fórum í pool og drukkum bjór, hrúguðum okkur síðan eftir það í bíl hjá einhverjum sem strákarnir hittu þar og fórum öll í partý heima hjá David vin Gumma. Kíktum einnig í smá partý heima hjá Gumma og Lindsey eitt kvöldið og enduðum í bænum.
Sólböð voru samt ekki vinsæl nema kannski í 30 mín hjá mér og Ástu. Enda erum við þær einu sem hafa vott af lit! hehe
Ég setti svo inn nýjar myndir á síðuna fyrir þá sem hafa áhuga.
Myndir frá Conneticut og heimsókn krakkana.
Annars er ég hætt í bili
-Magga-
posted @ 8/29/2006 09:11:00 e.h.