myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

júlí 07, 2006




Hananú og jæjaþá...

Við stelpurnar, Elma, Heiða og Rakel fórum til Ólafsvíkur á föstudaginn seinasta.
yeahh baby!
Við tjölduðum á fjölskyldusvæðinu til getað sofið í friði fyrir látunum (engin unglömb lengur skiljiði:P).
Meðan við tjölduðum kynntumst við nágrönnum okkar undir gítarsöng. Það var hann Kalli Lú útvarpsmaður og Elísabet Thorlacius og einhver vinkona hennar. Við sátum saman og drukkum og sungum. Þegar við Heiða Karen fórum á klósettið þarna þá gjörsamlega HRUNDI hún niður bara uppúr þurru! Svo næsta klósettferð var með Elmu korteri seinna og ég sýndi henni staðinn sem Heiða datt á, og vitið menn, um leið og ég sleppti orðinu þá var hún LÍKA dettandi þarna á sama stað!!
You just made my day:)

Ég meina klaufar eru líka fólk...

Því næst röltuðum við aðeins og á leiðinni hitti ég Önnu Helgu, Munda, Rakel Mjöll og Öddu:)
Sumar fækkuðu fötum við lækinn meðan aðrar voru kýldar af strák... uppúr þurru! JEMINN!
En eftir þetta fórum við niður á bryggju og skemmtum okkur með "unga fólkinu" hehehe... Ég hélt ég myndi missa vitið þegar ég mætti systur minni ásamt stelpunni sem ég var að PASSA þegar ég var yngri!! Þá leið mér eins og einhverri
grandma þarna! En tjahh jæja, þá var bara ekkert annað hægt að gera en að dansa úr sér allt vit:)
Við Rakel ákváðum að fara uppí tjald meðan Elma, Heiða og Einar bróðir fóru í fjallgöngu.
Don't ask!
Næsta dag sá ég svo brunarústir þarna fyrir utan tjaldið, ég er að tala um
SVARTAN blett í grasinu..... þá höfðu stelpunum dottið í hug að grilla áður en þær færu að sofa.
Við vorum sammála um að fara bara road trip og svo enda heima. Fannst of mikið af blind fullum
BÖRNUM þarna. Við keyrðum til ... ég vil segja Stykkishólms... var það ekki?? ehh..... æ við fórum eitthvert á einhvern stað og hittum Elvis og keyptum ís.;)
Svo keyrðum við einhvern fjörð sem við skýrðum "
RakMarElmHeiði" og eltum kindur.... en það er önnur ella;)

Á laugardagskvöldinu grilluðum við hjúin. Halla, Helga og Stebbi kíktu í heimsókn. Við sátum með útileigulögin á fóninum og drukkum rauðvín og fl...
Ýkt kósý (",)

Svo er mín búin að fara tvisvar í bíó, á "The Lake House" og "The Brake Up".
Mér fannst fyrri myndin ágæt, svoldil stelpumynd þó. Hin var
ÆÐI... mæli með að þið stelpur dragið kallana ykkar á hana! (Y)

Það er
GLAMPANDI sól þessa dagana og mín situr INNI og horfir með löngunaraugum út. Er að vinna 12 tíma vaktir alla helgina.
Gerðist þó ofurhugi og skokkaði frá Mjódd og uppí Árbæ í gær. Fór ein eins og oft áður svo þið sem eruð að koma ykkur í form, drattist til að hringja og koma memm:D

*Síjú*

** pssst... myndirnar frá helginni eru komnar...**




posted @ 7/07/2006 01:02:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu