júlí 18, 2006
Ég vil óska henni Ruttu innilega til hamingju með 22 ára afmælið sitt í gær! kossar og knúsar :**
Við Fannar áttum líka afmæli þann 9.júlí. Búin að vera saman í heilt ár!
Mér finnst samt eins og það hafi verið miklu lengur einhvernvegin:)
Hann bauð mér út að borða á Rauðará:) Vorum alveg sér útaf fyrir okkur , kertaljós og arinn... rosa rómó:) Ég pantaði mér humar og rauðvín, en Fannar steik og bjór... ekkert smá gott!! Þetta var alveg æðislegt:)

Svo ákvað ég (korteri fyrir brottför takk fyrir) að skella mér með norður með strákunum í tvítugsafmælið hans Stebba. Það var haldið í sveitinni sem hann átti heima í þegar hann var yngri.
Viktor, Krissi og Fannar komu og náðu í mig og á leiðinni var opnuð rauðvínsflaska og ófáir bjórarnir !
Fyrst týndumst við SMÁ. Bönkuðum uppá hjá einhverju fólki og báðum um að fá að hringja sem var ekkert mál. Þegar kallinn heyrði símanúmerið, þá ÞEKKTI hann það og benti okkur á annan bæ! Vá hvað fólkið í sveitinni á sér ekkert líf! hahaha!
En við komumst loks á leiðarenda og tjölduðum hjá hinum. Þau voru búin að koma sér fyrir niður að ponsu litlum læk. Sátu þar og grilluðu meðan bjórinn kældist í vatninu. Gítarinn svo tekinn upp og sungið hástöfum. Sumir dóu næstum (án gríns). *hóst*Krissi*hóst var tekinn inní tjald og nuddaður allur hátt og lágt útaf ofkælingu því hann "sofnaði" úti á túni!! Næsta dag fóru flestir í sund... ég svaf reyndar... trallalalala....Svo fórum við uppí salinn sem afmælið var í og byrjuðum að drekka. Elma kom svo með Ósk og kærastanum hennar rétt áður en maturinn byrjaði. Það var hlaðborð sem var ekkert smá flott. Mamma hans Stebba grillaði lambalæri ofan í jörðinni sem voru sjúklega góð! Eftir matinn var svo mikið tjúttað og trallað. Farið í leiki og dansað. Við stelpurnar héldum uppi stuðinu á dansgólfinu:PÞegar við komum aftur uppá tjaldsvæði hafði annar ónefndur sofnað meðan hann var að pissa, lá svo bara í drullunni með buxurnar á hælunum! Fannar ég held þú þurfir eitthvað að endurskoða þessa vini þína?!?!? :)HaHaHaHaEn jæja, svo eru það næturvaktir í heila viku, ekki spennó!
-Magga-
*Nýjar myndir komnar til hægri*



posted @ 7/18/2006 04:03:00 f.h.