júlí 30, 2006
4 dagar í þjóðhátíð!!!
... æ bara svona ef það fór framhjá ykkur...
Vikan var hin þægilegasta. Ég var í fríi og er búin að vera að dunda mér bara.
Lindsey kom á fimmtudaginn og við kíktum yfir til þeirra um kvöldið. Tókum hana á rúntinn og enduðum á Celtic. Eftir það fórum við í mini-skoðurnarferð að Perlunni, ég er ekki frá því að Fannari hafi fundist það skemmtilegra heldur en útlendingnum okkar híhí;)
Á föstudaginn var okkur svo boðið í fínt matarboð hjá ömmu strákana. Þar var samansafn af ættingjum. Það var grillað og drukkið... já og DANSAÐ!
hehehe ... geðveikt stuð hjá ömmu;)
Eftir það fórum við í bæinn og sýndum Lindsey ekta íslenskt djamm! Dönsuðum eins og vitleysingar og skemmtum okkur konunglega. Elma slóst í hópinn... ég man ekki alveg HVAR ég pikkaði hana upp samt 8-) daddaraaa
Við fórum öll saman á Rex þar sem var ennþá meira fjör... tekin ófá danssporin!!:)
Þegar fólk var orðið ansi drukkið þá keyrði Viktor okkur beinustu leið heim.
Í gær kvaddi ég svo hinn útlendinginn minn, hana Míu litlu. Hún bauð okkur stelpunum í partý og þar sátum við og höfðum það kósý syngjandi við gítarspil;) Ýkt næs:)
Hún þykist ekki ætla að koma hingað aftur fyrren eftir tvö ÁR! Svo það var ömurlegt að kveðja:S
Ég held ég sé lélegasti kveðjari í heimi... ég fæ alltaf tár í augun, já eða hreinlega fer bara að gráta! jeminn ...
Vid Rakel Arna og Elma fórum út að borða áðan á Ruby Tuesday. Eftir það röltuðum við niður að Klambratúni og horfðum á tónleikana með Sigurrós.
Það var rífandi stemming... eða allavegana á okkur stelpunum sem sátum þarna á teppi og létum eins og hálfvitar;)
Það var svoleiðis STAPPAÐ þarna, enda búist við 15.000 manns takk fyrir!
Glatað að þurfa að fara heim á kristilegum tíma sökum vinnu. Ég hefði SVOOO verið til í að liggja þarna á túninu með ís í spassakasti:D:D
En ágætis endir á annars frábærri helgi;)
Æjjhh vinnan kallar...
*Adios*
posted @ 7/30/2006 02:59:00 e.h.