myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 02, 2006







Jæja þá hef ég fengið að upplifa hvernig það er að vera í “The O.C”

Við Lindsey lögðum af stað á föstudaginn seinasta í road trip. Ferðinni var heitið til Naples, sem er í suður Florida við Mexíkóflóa.
Við keyrðum í 6 klst. Með nokkrum stoppum þó:P
Þegar við komum í bæinn þá gapti ég bara..... við mér blasti þessi RISA hús, umkringd pálmatrjám og risa hliðum. Sum voru með þessum svaka gosbrunnum fyrir framan.
Húsið sem frænka Lindseyjar og maðurinn hennar búa í er sjúklega flott! Kostar eitthvað um 250 miljónir króna... þau eru samt frekar ný búin að minnka um sig!! Shit sko... Bílarnir fyrir utan voru Glænýr hvítur hummer, geggjaður Range rover og svo sportbíll sem ég HELD að hafi verið benz. (Ég kann ekki neitt á bíla, bara að hann sé grænn og ílangur eða eitthvað svoleiðis...)

Við gistum í herbergi með tveim rúmum, svölum og stóru baðherbergi. Gerðum okkur til og fórum aðeins út á tjúttið.... já eða gamla-fólk tjútt hehehe
Staðurinn var geðveikt flottur og við fengum okkur mat og kokteila. Þarna voru nokkur hjón, svona “aðeins” eldra en við og dönsuðu við live tónlist. Fólk var orðið nokkuð drukkið og við ákváðum að drífa okkur heim. Við löbbuðum að þessum GEÐSJÚKA hummer sem við vorum á, elsti sonur hjónana sem við gistum hjá átti hann. Ég tók nokkrar myndir og pósaði með gamla sem var endalaust hress:) Svo áttum við nokkur mynda-móment inní bílnum en það er önnur saga...

Næsta dag vöknuðum við og fórum í Club house-ið þeirra. Ég asnaðist til að spurja Lindsey hvort það væri ekki örugglega klósett þar og hún bara starði á mig!
Ég hélt neflilega að Club house væri bara svona aðstaða til að skipta um föt og eitthvað... æ ég veitiggi...
En þetta var ALLT annað en ég hafði ýmindað mér. Þarna labbaði maður inn í gegnum hús og út að sundlauginni. Þar sátu fullt af fólki (allir ríkir og flestir miðaldra) og fengu sér hádegismat. Það var hlaðborð sem náði örugglega kílómeter af allskonar dýrindis mat! Við fengum okkur bara það sem við vildum og svo komu þjónar til okkar og tóku niður drykkja pantanir. Ég var sú eina sem fékk mér óáfengan drykk:) hehehe góð stelpa....

Svo löbbuðum við með tvær frænkur hennar, 4 og 6 ára og mestu dúllur um strandlengjuna. Tókum myndir, fórum í sjóinn, lágum í sólbaði og fl. Já svo þar sem þetta var afmælisveisla Lindseyar, þá sat hún eins og prinsessa og opnaði fullt af pökkum og henni var þjónað og dekrað við hana.
Svo ákváðum við Lindsey að rúnta aðeins og leika jón spæjó. Við keyrðum um og tókum myndir af flottum húsum. Fórum svo til baka á ströndina og horfðum á sólsetrið með öllum.
Þar næst lá leiðin á “Pippins” sem er sjávarrétta veitingastaður í eigu fjölskyldunnar. Það voru samt bara ég, Lindsey og Stacy frænka Lindseyar. Þar sátum við lengi og borðuðum og spjölluðum.
Þegar það var komið miðnætti þá drifum við okkur heim með Papana á fóninum og Lindsey söng með. Það var ýkt fyndið, híhíhí.... hún kann alveg taktinn en ekki textann nottla svo ég hló bara að henni hehehe

Við vorum búnar að hátta okkur og geyspandi þegar hún bað mig að koma aðeins með sér. Hún dró mig eitthvert bak við hús, ég labbaði á táslunum í GRASI og smá mold! Það vita ALLIR hvað ég er hrædd við að labba í grasi síðan ég sá myndina “Elskan ég minnkaði börnin” muniði ekki þegar þau voru tæní og labbandi í grasi?? Eina sem maður sá voru ógeðslegar pöddur og shit!
En ég var alger hetja og lét mig hafa það.... held samt að Lindsey hafi verið svoldið pirruð á garginu í mér.... híhíhí
Við enduðum á einhverjum gólfvelli. Þar var geggjað sætt þarna.... alveg þangað til hún hellti niður rauðvíninu sínu og við sáum eitthvað hreyfast í vatninu. Eins og það væri úlfur eða krókódíll þarna. Við allavega hlupum hraðar en Forrest vinur minn....... skíthræddar að sjálfsögðu. En sátum í staðinn inni og spjölluðum um heima og geyma til um kl. Hálf fimm! Þá drifum við okkur að sofa.

Daginn eftir vöknuðum við og lögðum af stað heim. Við vorum búnar að heyra um einhver mótmæli, eða “Mexican walkout”. Það var þannig að Mexikanar voru að mótmæla stöðu sinni og löbbuðu út af vinnustaðnum sínum og keyrðu allir norður. Áttu að hittast í Orlando.
Á leiðinni þá sáum við nokkra bíla hlaðna Mexikönum. Hræðilegir bílstjórar og dónalegir. Stara inní bílana hjá manni og eru bara ógeð. Allt skítugir kallar.
Svo heyrðum við í útvarpinu, það var verið að taka viðtal við fólk í sambandið við þetta. Það var spurt td. hvort fólk væri almennt á móti þessu eða hvort þeir ættu að fá sitt framgengt. Svo var líka verið að spá hvort það ætti ekki bara að hringja í I.N.S (útlendingaeftirlitið) og láta hirða þessa ólöglegu þar sem þeir væru jú allir mættir á sama stað! Svo var fólk að djóka með að plata þá bara í skip og henda þeim aftur til Mexikó. Híhíhí æææ það má samt ekki vera vondur við fólk sem á bágt. Þótt það megi samt hlægja aðeins að þeim:)

-Bæjó-



posted @ 5/02/2006 10:27:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu