maí 18, 2006
Jæja þá er ÞESSI stelpa að fara að lenda á Íslandinu eftir akkurat 9 daga!!!:)
Aðal-nördinn!
En hún getur líka verið ógisslega KÚL sko!

Jiminn hvað tíminn er fljótur að líða.... Við erum bara að pakka niður búslóðinni og ganga frá lausum endum.
Ég fór í gær og verslaði eins og ég átti lífið að leysa! Ég verslaði svo mikið að ég fékk hausverk og bakverk á að halda á öllum þessum pokum! Fór actually TVÆR ferðir út í bíl til að losa um;) En það er alltílæ, ég var að spreða annara manna peningum.:-)
Ég fékk nokkra innkaupalista og þaut útum allt eins og kaupóð kona. ....ok ég laumaði nokkrum fötum á mig inná milli.... lallalalalaa En ég hef aldrei vitað hvað það er næs að versla aleinn. Fannar og Gummi fóru í bíó á Matrix (strákamynd pifff) svo ég fór bara í mallið á meðan OG mér tókst að rata ALVEG SJÁLF!!! Ég fékk bílinn hans Mike og tókst svona lygilega vel að keyra bara beinustu leið! Það hefur alltaf tekið mig marga hringi og leiðbeiningar í gegnum símann (Fannar með kort)... en stelpan gat þetta;) ein stolt!
Á föstudaginn förum við Mike, Fannar og John (Halla mín þú þekkir kappann híhíhí) út að borða á steikhús í boði Mike og svo í bíó á Da Vinci Code. Hún fékk víst léléga dóma, en fyrir manneskju sem hefur reynt að lesa bókina í 2 ár, þá er þetta bara "guði sé lof". Við erum svo búin að vera í íbúðarleiðöngrum hægri og vinstri. Fundum tvær sem okkur líkar vel við... önnur er á móti háskólanum en hin á móti mollinu, svo þetta er erfið ákvörðun! hahahaha
Við fáum svo gesti strax og við lendum í haust, fyrst koma Stebbi vinur Fannars og Ásta beibí. Lítill fugl kvíslaði því að mér að Rakel Arna langaði aftur til mín og kæmi kannski með þeim.... svo eftir þeim koma Viktor og Þórhalla. Það verður sko allmikið hopp og hí og trallalííí...... Familían manns var líka að spá í að koma sem fyrst:) Það væri æði. En ekkert er víst með skólann, engin niðurstaða komin... maður er sendur í hringi og enginn veit neitt..... en það kemur allt í ljós. Við eigum allavegana flugmiða hingað í haust og búslóð sem bíður manns svo maður kæmi samt sem áður, þó ekki nema ganga frá draslinu og skemmta gestum:) ...
*kiss kiss*
posted @ 5/18/2006 12:07:00 e.h.