myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 08, 2006



Ég hata moskítóflugur!!

Ég veit að það er ljótt að hata... maður á aldrei að hata neitt..... en ég get samt sagt með hreinni samvisku að ég HATA moskítóflugur!! Þótt þær séu hlekkur í fæðukeðjunni og hafi sinn tilgang, já eða éti önnur skordýr sem eru að bögga okkur þá vildi ég samt óska þess að ég gæti smellt fingrunum og allar moskítóflugurnar myndu detta niður dauðar greyjin.

Vorið er sá tími sem þær fara á stjá. Ég hef verið bitin svona billjon hundruð sinnum á einnu viku!! Ég er ekki með nein venjuleg bit.... ó nei... é
g er með KÝLI útum allar lappir og hendur! Ristin á mér er fjólublá!! Ég er STOKKBÓLGIN innaná henni:( Innaná lærinu á mér er ca. 30 cm radíus bit!! og það er fjólublátt í þokkabót! Jiminn eini ég hef aldrei lent í öðru eins:S

Ég var að vinna í gær. Það var eitthvað brúðkaup í Georgiu og ég fór með Lindsey og Fannari að hjálpa. Staðurinn var sjúklega flottur og ævintýralegur. Þetta er svona ekta Ameríkst bóndabýli nema ekki alvöru, heldur staður til að halda veislur og þannig.
Kannast einhver við "Gone with the
wind"??
Þetta voru vinsælir þættir í denn. Sennilega fyrir 30-40 árum (myndi ég halda).
Anyways, þeir voru teknir upp á þessum stað. Í einu húsinu voru myndir uppá vegg frá því tímabili og myndir úr þáttunum. Lyktin var eins og úr Árbæjarsafni, ekkert rosalega fersk:P
En þetta var einhverskonar leikhús og það var eins og maður væri komin aftur í tíman. Allur staðurinn, eða plantekran var rosalega falleg. Húsin gömul og flott. Þið getið bara ýmindað ykkur uppáhalds gamla þáttinn minn (hóst*Húsið á sléttunni*hóst). Váá hvað ég elskaði þann þátt (
og geri enn... lallalala)!
Þetta var akkurat svoleiðis umhverfi!:)
Við vorum að vinna í 12 tíma og vorum dauðþreytt þegar við komum heim. Það var þá sem ég sá öll þessi helv*** moskítóbit!!! Ég er bara búin að liggja og reyna að klóra ekki...

Fannar fær líka nokkur bit, en þau hverfa bara daginn eftir......

Ég er að verða geðveik á þessu... svo er svo erfitt að
klóra sér EKKI en ég reyni samt eins og ég get. Ææææ ég vorkenni greyið mér....

Samt er yndislegt að vorið sé að ganga í garð... ekki það að sólin lætur ekki sjá sig hérna, heldur að ég vil koma heim í sumarstemminguna:)
Rut var að segja mér að íbúðin verður hennar innan skamms og ég hlakka rosalega til að getað hisst yfir rauðvíni og ostum og haft það kósý:-) jeiijjj:)

Ég veit ekki hvaða helgi eða vaktir ég verð að vinna, en mig langar að getað tekið tjald, áfengi, mat og góða skapið og farið bara EITTHVERT
og haft gaman:) Ég skal sko sjá til þess að þið komið memmér í útileigur, þótt það sé bara Heiðmörk, bara EITTHVAÐ!!:)

En á morgun fáum við bílinn hans Mike og ætlum að fara að skoða íbúðir takk fyrir. Erum á seinasta sjens að finna þar sem við förum heim eftir ca. 3 vikur....

Æjj ég nenni ekki að skrifa meira... fékk bara alltí ein
u þörf fyrir að skrifa eitthvað ómerkilegt.......
bæbæ
ps. ég er svo ógisslega klár að baka að það er ekki eðlilegt... hehehehehehe:D




posted @ 5/08/2006 07:31:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu