myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 31, 2006



Þá er maður lentur á jakanum.
Rok og rigning úti núna... glatað að yfirgefa sól og sumaryl fyrir þetta skítaveður.
En það er ekkert betra en Ísland svo ég ætla ekki að kvarta:)

Ég lenti semsagt á laugardagsmorgun eftir ca 26 klst ferðalag takk fyrir og góða nótt!
Náði samt sem áður að sofa í heila 4 tíma áður en ég vaknaði og dreif mig í útskriftarveislu hjá henni Heiðu minni. Þar var mikið sprell. Foreldrar hennar grilluðu ofan í okkur og bjór með og svo fóru sumir í pottinn, voða næs. Um miðnættið náðum við í Ruttu og þá var haldið í partý heima hjá Fannari. Þar voru komnir saman helstu vinir hans.
Eftir það lá leiðin i bæinn.
Helga og Stebbi, ég og Rut. Þau fyrrnefndu fóru samt strax heim svo við Rutta kíktum á Rex og með Hauki sem vinnur með mér og vini hans.

Fannar minn kom svo seinna og heiðraði okkur með sinni nærveru, hann var doldið *fugglur* og skemmtilegur þetta yndi en það er önnur ella:)
Planið var aðalega að fagna stúdentinum með Heiðu, en stelpan tók bara hraðlestina...... stuttan hring í bænum og fór beint heim sökum þreytu *hóst*ofurölva*hóst*:) -Go Heiða!
Svo við fengum þá far með Viktori og ég fór heim að SOOOFA! Vá hvað ég gat sofið... ég held ég hafi sofið í 15 tíma!! (ekki í fyrsta skiptið reyndar but anywho;))

Þetta var stutt tjútt en gaman:)

Ég er komin á Grandið svo í sumar. Strax byrjuð að vinna.
Það þarf samt að stússast meira í skóla og íbúðarmálum. Þarf að fara í sendiráðið og sníkja Visa áritun og eitthvað ... læra undir Toefl prófið og líka "stöðupróf" sem ég tek úti sem segir mér hvar ég er stödd í skólanum.

Fannar er kominn með vinnu. Hann er blómasendill... híhíhíhí ... hljómar svoldið skondið, en er virkilega næs vinna. Hann er á litlum trukki og vinnur tiltölulega sjálfstætt. Hann hefur bílinn yfir næturnar svo þar sem ég er bíllaus þá getur hann skutlað mér í vinnuna þessi elska. Svo fékk hann líka gemsa.

Svo þyrfti maður svo að koma sér í form. Ég er að vona að ég geti farið að æfa fitness box með stelpunum, en það veltur allt á vinnunni:(

Nóg um mig....

... og yfir til þeirra:
The image “http://www.bradandangelina.net/mkbzpy.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Brad Pitt og Angelina Jolie hafa eignast sitt fyrsta barn saman. Stelpan kom í heimin í Namibíu og hefur fengið nafnið
Shiloh Nouvel sem þýðir víst "His gift" á hebresku.
Einnig bera þau bæði, ásamt börnum sínum eftirnafnið Jolie-Pitt.

Þetta barn hlýtur að vera fallegasta barn veraldar!
Nema að reglan "Fallegir foreldrar=ófríð afkvæmi" gildi hér, hver veit.
Kannski þau séu OF falleg að barnið verði eitthvað afbrigðlegt.... hehehe

Vonandi fá þau nú samt frið frá pressuni til að sinna litla beibíinu...

Æ ég ætla samt ekki að detta ofan í slúðrið, þetta er svona eiginlega það eina merkilega sem ég þurfti að tjá mig um......

-Bæjó-


posted @ 5/31/2006 05:06:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu