apríl 01, 2006

Ykkur er boðið í afmælið mitt á morgun, 2.apr að:
415 N.Gadsden st. #112
Tallahassee 32301
FL
ef þið sjáið ykkur ekki fært um að mæta þá vinsamlegast látið mig vita...
.... ohhh eg er svo fyndin:)
En ég fór að spá í því áðan meðan ég lá úti í sólbaði hvað tíminn er rosalega fljótur að líða.
Mér finnst ég hafa sloppið út FG í gær, en það eru víst komin 2 ár síðan!!
Ég tók ákvörðun að vinna í eitt ár og drífa mig svo í háskóla... sem ég gerði reyndar en hætti (hélt ég yrði tilbúin en vissi ekkert hvað mig langaði að læra). Allt að því hafði verið fyrirfram planað. En síðan ég hætti hefur allt verið í lausu lofti.
Það er svo mikil pressa á manni að drífa sig að gera eitthvað að viti við líf sitt. Maður prufar hitt og þetta og áður en maður veit af er maður orðinn 23.ára! (eins hræðilegt og það hljómar, hehe).
Ég hafði ætlað mér að vera komin mun lengra um þessar mundir... en svona er þetta.
Nú skil ég loksins hvað amma er alltaf að tala um þegar hún segir að tíminn líði of hratt.
Þegar hún talaði um það, þá hugsaði ég alltaf bara ha nei! "Ég á heilt ÁR eftir í skólanum" eða "Oh það er ekki fyrren eftir tvær heilar vikur!!"... (æ þig skiljið ...).
Núna HVERFA mánuðurnir hverjir á fætur öðrum og maður hefur varla tíma til að anda...
Þegar maður býr svona einn í útlöndum, þá rennur betur upp fyrir manni hvað maður á góða að. Allir vilja hjálpa.
Ég á sko bestustu fjölskylduna og æðislega vini. Gæti ekki verið heppnari;)
Vonandi verðum við stelpurnar ekki OF uppteknar að því að eldast. Ég vil ekki verða svona "þriðjudags-vinkona" (sorrý Halla að ég er alltaf að gera grín að þessu! hehe).
En þótt Ruttan sé að verða húsmóðir á hverri stundu, Halla og Rakel Arna að einbeita sér að förðunarferlinum, Mía ofurmamma í Noregi, Helga í Köben, sumar á leiðinni út í nám og aðrar í HÍ...
Það er eins gott að þið séuð ekki að fara að verða OF fullorðnar... annars er mér að mæta;)
En ég ætla að fara að henda eggjum í nágrannana og njóta þess að vera 22.ára... hef 7 og hálfan tíma til stefnu!
Luuvv Magga**

posted @ 4/01/2006 09:06:00 e.h.