apríl 04, 2006
TIL HAMINGJU MEÐ AMMLIÐ HULDA... 23 ára í dag sko, næstum því jafn stór og ég;)
Ég er ein heima núna, Fannar að vinna.
Sálin er með einkatónleika hérna í stofunni hjá mér og ég er að taka til. Svaka fjör:P
"komdu með mér til að kanna heiminn, kreistum appelsínur finnum keiminn, tínum döðlur tökum daginn snemm'í nótt....lallalala"
"þegar heimurinn heillar mig eins og töfrandi lag, þá vil ég vera með þééér...."
"það er ólýsanlegt, já og alls engu líkt, sjaldan mun komast í tæri við slíkt..."
"þú og ég við verðum englar eða árar bæði tvööö, þangað til við skulum trallalaa... þangað til og njóta þeeeess, það var kallt en síðan svo heitt, það var allt en svo ekki neiiiitt...."
"skuggar í skjóli næætuuur, skjóta rótum sínum hééér, farði og fjaðra haaamur allt svo framandi er, fyrirheit enginn á, aðeins von eða þrá... svo á morgun er aaallt liðið hjááá... lalalala tralalalala sódóóóómaaa éééeee.."
.... æ þið skiljið...
Halla þegar þú kemur í heimsókn þá skulum við halda okkar eigið sálarpartý:)
Svo er auðvitað skylda að fara með mér á tónleika ef ég kem heim í sumar! Þeir verða pottþétt að spila á Nasa einhverja helgina;)
Back to the real life...
ég setti áðan í tvær vélar, fötin okkar voru farin að mynda fjöll, vaskaði upp, tók til, ryksugaði og ég veit ekki hvað. Ég ætti að fá medalíu!
Á afmælisdaginn minn bauð Fannar mér út að borða á Fridays. Það var óttalega kósý:)
Við borðuðum á okkur gat og svo fékk ég risa kokteil... meðan sumir máttu bara fá súkkulaðisjeik;) híhíhíhí
Takk allir fyrir kveðjurnar... *mwahh*
Í gær vorum við dugleg og fórum í ræktina sem er hjá Gumma og Lindsey. Þau eru með gym, tvær sundlaugar og tennisvöll og við megum nota það líka;) Rosa lúxus!
Nú er farið að hitna úti, sumarið að koma. Það er samt ekki ENN búið að þrífa sundlaugina sem er hjá okkur! Ég bíð bara spennt....
Á morgun ætlum við Fannar og Lindsey í smá road-trip. Við ætlum á strönd sem er um 2 tíma í burtu. Þessi á að vera svona "alvöru", og miklu flottari en þessi sem við fórum seinast á:)
Ég mun taka óteljandi myndir eins og mér einni er lagið og leyfa ykkur að sjá;)
En ég ætla að klára að gera fínt áður en Fannar kemur úr vinnunni...
úff þessi var góður....
Fyrrverandi afmælisbarnið kveður að sinni... bæbæ
posted @ 4/04/2006 10:13:00 e.h.