apríl 15, 2006



Í sól og sumaryl... trallalalala
Héðan úr Flóridanu er allt gott að frétta. Við vitleysingarnir áttum 9 mánaða "afmæli" og fórum í road trip til Panama City Beach. Við tókum bílaleigubíl og keyrðum út um allt. Ég var skráð fyrir bílnum útaf aldrinum svo ég var bílstjórinn. Hentist út um allt á 150 km hraða! *össs*
Það var algert æði og endalaust kósý. Ströndin heitir eitthvað "Emerald beach" (held ég) og sandurinn er hvítur og sjórinn blágrænn. Rosalega fallegt þar.
Í fyrradag var svo bankað á hurðina mína með miklum látum og þegar ég opnaði heyrðist bara "SURPRISE" !!! Þarna stóðu Halla og Rakel Arna í öllu sínu veldi:) Mín voða ánægð að fá shopping-partnera! Já og að sjálfsögðu líka félagskapinn:) Ég hélt ég ætlaði að fara yfirum ég var svo spennt :$ híhí
Við byrjuðum fyrsta daginn að fara í mallið. Þeyttumst úr búð í búð með kortin okkar og vorum full hlaðin pokum....... já eða aðalega Rakel hehehe
Hún bókstaflega fór inní búðir eins og hvirfilbylur, hrifsaði eitthvað, borgaði og var komin út eins og skot!! Ég vissi ekkert hvað stelpan keypti fyrren hún hélt svo sýningu fyrir okkur heima;)
Við vöknuðum snemma í morgun og héldum af stað til Panama City. Við fórum á ströndina sem við Fannar fórum á í fyrradag og það var algert æði! Vorum allar með vindsængur og flutum útá sjó í svaka öldum... ok smá öldum... hehe
Sumir *hóst*Halla*hóst eyddu mestmegnið af deginum á kafi að týna krabba..... hún var með fyndnustu gleraugu í geimi stelpan og leit út eins og ég veit ekki hvað!!! Ég lá þarna uppá dýnunni minni meðan ég átti að PASSA krabbana sem hún var búin að finna og koma fyrir í holunum á vindsænginni!!!! Fólkið á ströndinni sá mig þarna EINA passandi krabba GRENJANDI úr hlátri.... Halla var nottla mest undir yfirborðinu :)shitt hvað ég fékk miklar harðsperrur í magavöðvana bara á því að hlæja!!
Við ætluðum að kíkja á djammið í kvöld en fórum bara á Ruby Tuesday að borða og svo fóru stelpurnar heim að sofa. Ég var ekki alveg á þeim buxunum að fara að SOFA svo Mike og Fannar sóttu mig og við rúntuðum aðeins þar til Lindsey hringdi og sagði okkur að kíkja yfir til sín því Gummi er á fullu í lokaprófum og þarf skiljanlega næði.
Við klæddum okkur í stuttermaboli og stuttbuxur, tókum rauðvín og bjór og "brutust inn" í sundlaugina hjá þeim!!:) Við sátum þarna og spjölluðum. Svo henti Fannar okkur Lindsey útí með miklum látum og ég fór á bólakaf, eins vatnshrædd og ég er:) hehe
Það var endalaust gaman og við röltuðum rennandi blaut til baka....
-out-
posted @ 4/15/2006 04:25:00 f.h.